tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post1812482348998392460..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Af hverju ekki ESBGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger6125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-85117669549735946332009-11-28T15:10:27.082+00:002009-11-28T15:10:27.082+00:00Smá leiðrétting, íslendingar mundu fá 6 evrópuþing...Smá leiðrétting, íslendingar mundu fá 6 evrópuþingmenn eins og Malta.Jon Frimannhttps://www.blogger.com/profile/13866568457649846996noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-33211693919257865952009-11-28T13:38:43.629+00:002009-11-28T13:38:43.629+00:00Góð grein hjá þér Guðmundur.
Ég var einn þeirra s...Góð grein hjá þér Guðmundur.

Ég var einn þeirra sem gapti af undrun á landsþingi sjálfstæðisflokksins en þessi samkoma var ein allsherjar fordæming á esb. Í ljósi þess fyrir hvað esb stendur er það óskiljanlegt og meira í ætt við afstöðu þeirra flokka sem annað hvort teljast til öfga vinstri í evrópu eða lítilla hópa sem kenna sig við nasisma. Enn skrýtnara verður þetta þegar skoðað er afstaða nokkurra samtaka sem í gegnum tíðina hafa verið höll undir flokkinn en þau eru m.a.;
Samtök iðnaðarins, samtök atvinnulífsins, samtök ferðaþjónustunnar, samtök verslunar og þjónustu, samtök stórkaupmanna og að ég held öll samtök nema LÍÚ.

Skýrslan sem þú vitnaðir til og kom út í mars 2007 undir forystu Björns Bjarnasonar er mjög góð lesning og svarar öllum helstu áleitnu spurningum um esb og ekki síst sjávarútvegsmálum. Sjálfur var ég skeptískur á inngöngu í esb þar til ég las þessa skýrslu. Það er hins vegar eins og enginn trúi efni skýrslunnar, allavega vitnar engin til hennar, efni hennar fæst ekki rætt og jafnvel þeir sem sömdu skýrsluna halda nú fram hlutum sem eru augljóslega hraktir í umræddri skýrslu.

Ég er jafn hissa og þú á þessum viðbrögðum. Eitt það fyndnasta sem ég hef heyrt í öllum þessum makalausu umræðum um esb var um daginn þegar ég heyrði harðan andstæðing inngöngu í esb segja við mig að ef ísland gengi í esb þá væri hann farinn. Ég spurði kurteislega hvert hann myndi fara og það stóð ekki á svarinu: til Danmerkur!

Kær kveðja og takk fyrir góða grein, Þórður Áskell MagnússonAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-81615907218159796392009-11-28T12:55:26.271+00:002009-11-28T12:55:26.271+00:00Ef fleiri hugsuðu eins og þú. Þá væri ég ekki eins...Ef fleiri hugsuðu eins og þú. Þá væri ég ekki eins áfjáður um að yfirgefa landið!!

Ef hagsagan er skoðuð þá hefur verðbólgubál og kreppur verið allt of tíðar, og munu vera það ef höldum okkur utan ESB og Evru, með tilheyrandi erfiðleikum fyrir neytendur í landinu...Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-53015020467989182142009-11-28T11:23:21.985+00:002009-11-28T11:23:21.985+00:00Guðmundur, þú ert ágætur. Það væri hægt að segja s...Guðmundur, þú ert ágætur. Það væri hægt að segja svo margt um þennan pistil þinn en læt þetta nægja.

Varst þú á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sl. vor? Það get ég varla ímyndað mér en það var ég hins vegar. Umrædd Evrópuskýrsla var svo sannarlega til umræðu og var ennfremur dreift til allra fundarmanna. Nefndin lagði til ákveðna tillögu að ályktun í Evrópumálum, hún var tekin til umræðu bæði í málefnanefnd fundarins um Evrópumálin sem og síðan á landsfundinum sem slíkum. Gerðar voru breytingar á henni í meðförum landsfundarins unz meirihluti fulltrúa hans gátu samþykkt hana. Þetta heita lýðræðisleg vinnubrögð í minni orðabók en þú virðist telja að landsfundarfulltrúar hefðu bara átt að samþykkja tillögu Evrópunefndarinnar hráa? Gilda einhverjir einræðistilburðir í þínu sambandi?

Hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki alltaf verið gagnrýndur fyrir það, sérstaklega af vinstrimönnum í verksalýðshreyfingunni, að draga taum atvinnurekenda? Og nú er flokkurinn gagnrýndur af gjarnan sömu aðilum fyrir að gera það ekki í Evrópumálunum? Reyndar eru atvinnurekendur klofnir í afstöðu sinni til málsins eins og t.a.m. skoðanakannanir t.a.m. hjá SI og SA hafa sýnt.

Að lokum, þú segir margt í málflutningi okkar sjálfstæðissinna vera rakalausar dylgjur. Pistillinn þinn færir reyndar engin haldbær rök fyrir þeirri fullyrðingu eða rök yfir höfuð. En hvernig væri að líta í eigin barm og kannski kynna sér málin í leiðinni?

Opinber embættismannafjöldi Evrópusambandsins er aðeins toppurinn á ísjakanum. Stærstur hluti þeirra embættismanna sem raunverulega starfa að því að framkvæma stefnur sambandsins eru á launaskrá ríkja þess.

Vægi ríkja og þar með möguleikar þeirra á áhrifum innan Evrópusambandsins fer eftir því fyrst og fremst hversu fjölmenn þau eru. Malta er þannig t.a.m. með 5 þingmenn á Evrópusambandsþinginu á meðan Þjóðverjar hafa um 90. Jafnmikil völd? Neitunarvald er þess utan á hröðu undanhaldi innan Evrópusambandsins og þeim sviðum sem það gildir á hefur fækkað stórkostlega á undanförnum árum. Þetta kallast á fallegu máli að "straumlínulaga sambandið".

Og já, við fengjum enga 20 þingmenn á þingi Evrópusambandsins. Hvaðan hefur þú það? Malta hefur 5, fær 6 samkvæmt Stjórnarskrá sambandsins (Lissabon-sáttmálanum) með sína 400 þúsund íbúa. Hvers vegna ættum við þá að fá 20?? Við fengjum sennilega jafnmarga og Malta.

Kynna sér málin.Hjörtur J. Guðmundssonphttp://sveiflan.blog.isnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-14778573602840921182009-11-28T10:49:43.936+00:002009-11-28T10:49:43.936+00:00Eins og talað úr mínu hjarta og kaus ég þó Sjálfst...Eins og talað úr mínu hjarta og kaus ég þó Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum með beiskt bragð á tungunni!

Guðbjörn GuðbjörnssonAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-20931994971215990952009-11-28T10:03:26.110+00:002009-11-28T10:03:26.110+00:00"Á Íslandi eru 37 þús. opinberir starfsmenn. ..."Á Íslandi eru 37 þús. opinberir starfsmenn. Það eru 491 millj. manns innan ESB og hjá sambandinu eru það 35 þús. starfsmenn, þar af eru 7 þús. túlkar."
Og eru það allir opinberir starfsmenn í ESB? Engir opinberir starfmenn í einstökum ríkjum ESB?
7 þúsund túlkar! Hvað þurfa íslendingar marga túlka, ef gengið verður í ESB?Anonymousnoreply@blogger.com