tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post2440746486475274516..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Niðurstaða prófkjaraGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger1125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-41787948742831338562009-03-15T12:21:00.000+00:002009-03-15T12:21:00.000+00:00Sæll GuðmundurÞessi mýta um að óvenjufáir taki afs...Sæll Guðmundur

Þessi mýta um að óvenjufáir taki afstöðu til flokka í könnunum nú, er bara ekki alveg rétt.

Það að í kring um 70-80 prósent svarenda - eða þeirra sem náð er í, svari og taki afstöðu til einhverja þeirra flokka sem í boði eru, er ekki bara viðunandi, heldur frekar hátt hlutfall.

Síðan spyrðu af hverju við birtum ekki "rauntölur" þ.e. fylgi flokka með tilliti teknu til þeirra sem kjósa ekki, skila auðu, eru óákveðnir, etc. Þar kemur tvennt til. Í fyrsta lagi yrðu slíkar tölur ekki samanburðarhæfar við annað sem hefur verið birt og gæfu því skakka mynd miðað við það sem fólk þekkir nú.

Í öðru lagi er nú kaldur veruleikinn sá að þeir sem kjósa ekki, skila auðu eða skila ógildum seðli, skipta ekki máli við úthlutun þingsæta. Þó svo það væri bara einn í hverju kjördæmi sem myndi kjósa, þá þyrfti að úthluta þingsætum í samræmi við það eina gilda atkvæði.

Það sem verið er að sýna er hvernig alþingi myndi líta út, væri gengið til kosninga nú. Síðan er sérstaklega tiltekið ef óákveðnir eru margir, eða þeir sem kjósa ekki, því það eru vissulega vísbendingar. Þessi hópur hefur bara minnkað mikið frá óánægjarbylgunni í upphafi árs.Anonymousnoreply@blogger.com