tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post313530697216432825..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Hvert liggur leið okkar?Guðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger3125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-41782312225808162572009-08-26T08:46:13.653+00:002009-08-26T08:46:13.653+00:00Ég skil þennan pistil Guðmundar þannig að hann vil...Ég skil þennan pistil Guðmundar þannig að hann vilji fitja upp á vitrænni umræðu um hvernig við ætlum að takast á við framtíðina, þannig að við getum boðið börnum okkar upp á betra samfélag en það, sem hér hefur verið til þessa. Margur maðurinn hefur tekið þá afstöðu, vegna þess hvernig til hefur tekist hjá okkur undanfarið, að setja megi samasemmerki milli allrar stjórnmálaþátttöku annars vegar og spillingar og mútuþægni hins vegar. Það þykir mér nokkuð ódýr afstaða, þótt hún sé að sumu leyti skiljanleg. Ef við ætlum að hafa lýðræði, þar sem öll nálgun að samfélagsmálefnum sé jafn gild, úr hvaða átt sem hún kemur, verðum við með stjórnmál og stjórnmálaþátttöku. Það er óhjákvæmilegur þáttur lýðræðisins að fólk skipi sér saman í hópa, flokka, sem hafa svipaðar skoðanir á því hvernig skuli ráða fram úr hinum samfélagslegu viðfangsefnum. Ef við teljum hinsvegar lýðræðið ónýtt form eru þeir kostir, sem eru til staðar annað tveggja algjört stjórnleysi, anarchy, sem sumir aðhyllast reyndar, ellegar einræði, monarchy, þar sem einn eða fáir hafa öll ráð í hendi sér og eru ekki háðir neinu kjörnu yfirvaldi, þingi, og það er kannski það, sem sumir vilja?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-68239045563436773052009-08-26T00:01:53.925+00:002009-08-26T00:01:53.925+00:00Á forsíðu stendur að athugasemdir séu velkomnar sv...Á forsíðu stendur að athugasemdir séu velkomnar svo framarlega að þær snerti efni viðkomandi pistils.
Þessi aths. ætti reyndar heima við pistla sem voru hér fyrir nokkru. En varla þennan.

Það er erfitt að alhæfa um lífeyrissjóðina, þeir standa ákaflega misjafnlega, eins og margoft hefur komið fram.

Þeir eiga mismiklar eignir erlendis. Sumir eiga þar töluvert og þær eignir hafa verið að vaxa mjög hratt undanfarið eins og kom fram í fréttum í síðustu viku.

Einnig eru eignir þeirra í ríkisstryggðum skuldabréfum mismiklar, en hjá sumum er það töluvert.

Spurningin snýst um nokkur af þeim félögum sem útrásarvíkingarnir settu upp, með aðstoð bankanna að því virðist.

Þeim var breytt í fjárfestingarfélög og skuldapíramída án þess að Fjármálaeftirlit eða Seðlabanki stæðu sína plikt.

Þar var verið að blekkja allmarga einstaklinga sem keyptu skuldabréf og hlutabréf tengt þessum félögum.
Þetta hefur verið gagnrýnt harkalega hér í pistlum hvernig ríkjandi stjórnvöld stóðu ekki vaktina sem leiddi til þess að sumir lífeyrissjóðir og allmargir einstaklingar hafa tapað fjármunum, hversu miklum er ekki komið fram ennþá og verður ekki ljóst fyrr en skilanefndir eru búnar að ganga frá málum og niðurstaða væntanlegra réttarhalda fæst.

En eins og margoft hefur komið fram á eru í lífeyrissjóðunum gríðarlegar eignir og eru mikið rætt um að það fjármagn geti verið það haldreypi sem gæti komið þessu þjóðfélagi í gang.

Spurningin er hvenær efnhags- og atvinnulífinu verður komið í gang og hægt verður að láta þetta fjármagn vinna í stað þess að safnast upp á bankareikningum.

En því miður verður það aðsegjast eins og það er, fréttaflutningur nokkurra af lífeyrsisjóðum er alveg ótrúlega ómerkilegur og byggður á þekkingarskorti, en mikilli þörf á innistæðulasum upphrópunum.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-51419782371115816712009-08-25T21:34:04.391+00:002009-08-25T21:34:04.391+00:00Guðmundur,hvernig er það með lífeyrissjóðina okkar...Guðmundur,hvernig er það með lífeyrissjóðina okkar ? Er það satt sem sagt er að búið sé að brenna upp ellilífeyri landsmanna heimskulegu gróðabraski og sukki.
Og ef svo er væri þá ekki heiðalegast af þeim sem var treyst fyrir þeim að stíga fram og viðurkenna það fyrir eigendunum.Anonymousnoreply@blogger.com