tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post5169014266450161047..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Kvikmyndin á Íslandi og MánasteinnGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger1125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-12119677052384364652013-11-02T07:28:07.945+00:002013-11-02T07:28:07.945+00:00Þakka þér fyrir áhugaverða frásögn af upphafi kvik...Þakka þér fyrir áhugaverða frásögn af upphafi kvikmyndasýninga á Íslandi, Guðmundur. Afar merkilegt að frumsýningin hafi átt sér stað á Akureyri árið 1903. Þetta atriði sýnir, hversu bærinn hefur verið talinn menningarlega og efnahagslega mikilvægur á þessum árum - kureyri talinn standa jafnfætis Reykjavík. Það væri sjálfsagt forvitnilegt rannsóknarefni fyrir félagsvísindafólk að kanna og komast að því, hvernig þessar erlendi kvikmyndir hafa haft áhrif á heimsmynd Íslendinga og jafnvel vakið löngun í brjósti þessar örsnauðu þjóðar við ysta haf að ná sama tæknilega þróunarstigi og sjá mátti á hvíta tjaldinu. Ég hlakka mikið til að lesa þessa bók sem þú segist vera með í smíðum um rafvæðingu Íslands. Á sumrin starfa ég sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn. Það sem þessum gestum okkar, erlendis frá, þykir afar merkilegt - og reyndar mér líka - er sú staðreynd, hversu snemma Íslendingar færðu sér ýmsar tækninýjungar í nyt, t. d. vélar í fiskiflotann. Með kveðju Orri Ólafur Magnússon Anonymousnoreply@blogger.com