tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post6446984517623372239..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Stolnar fjaðrirGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger2125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-29295100029443597262008-05-26T18:08:00.000+00:002008-05-26T18:08:00.000+00:00Heill og sæll Guðmundur, Ég má til með að benda á ...Heill og sæll Guðmundur,

Ég má til með að benda á það að með grein okkar Andra Óttarssonar í Fréttablaðinu um helgina vorum við að gera grein fyrir því hvernig gengi að uppfylla þau fyrirheit sem ríkisstjórnin veitti í stjórnarsáttmálanum. Þau atriði sem þú kallar stolnar fjaðrir eru flest nefnd í stjórnarsáttmálanum svo sem hækkun barnabóta, hækkun persónuafsláttar,lækkun vöruverðs, afnám stimpilgjalda o.s.frv.
Við í Samfylkingunni tökum mjög alvarlega þau verkefni sem tiltekin eru í sáttmálanum. Við lítum svo á að við berum pólitíska og siðferðilega ábyrgð á því að efna þessi fyrirheit. Það mun auðvitað taka sinn tíma að koma á annað hundrað verkefnum í framkvæmd en það verður gert á þessu kjörtímabili, sem klárast vorið 2011. Nú þegar eru nær 90% þessara verkefna komin í framkvæmd eða á góðan rekspöl í ráðuneytunum. Geri aðrir betur!Sumt gerist strax, annað þarf að vinna í áföngum en þetta verður gert. Það er því fráleitt að halda því fram að verkalýðshreyfingin hafi þvingað ríkisstjórnina til þess að efna þessi fyrirheit sem eru í stjórnarsáttmálanum, það stóð aldrei neitt annað til, minn kæri.

kær kveðja
Skúli Helgason framkvæmdastjóri SamfylkingarinnarAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-29380955625206211442008-05-26T17:55:00.000+00:002008-05-26T17:55:00.000+00:00Geir var líka flottur í drottningarviðtalinu í 24 ...Geir var líka flottur í drottningarviðtalinu í 24 Stundum. Hagstætt, sagði hann, að vera utan við ESB því þá væri hægt að bregðast við áföllum með skjótari hætti.
Ég átti ekki orð til að segja upphátt um hann og er ég þó kjaftfor með afbrigðum. Heldur maðurinn virkilega að sveiflurnar yrðu svona öfgakenndar ef við værum í ESB? Væri ekki líklegara að við værum í sömu eða svipuðum sporum og t.d. Danir eða jafnvel Færeyingar og ekki þyrfti að setja allt á hvolf með "aðgerðum"?Anonymousnoreply@blogger.com