tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post7416367244890996678..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Jöfnun lífeyrisréttindaGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger7125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-14649246857180110102013-07-16T17:18:24.506+00:002013-07-16T17:18:24.506+00:00A - sjóður ríkisins átti að jafna þessi eftirlauna...A - sjóður ríkisins átti að jafna þessi eftirlaunakjör. En það er athyglisvert að ríkisstarfsmenn eru að greiða hærra gjald í sinn lífeyrissjóð.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-36578739128569524562013-07-15T15:01:21.681+00:002013-07-15T15:01:21.681+00:00Örorkubyrði sjóðanna óx mjög hratt í lokm seinni h...Örorkubyrði sjóðanna óx mjög hratt í lokm seinni hluta síðustu aldar og hélt svo áfram fram að Hruni. Það er auðvelt að flytja mílulangar hugleiðingar um hvað hafi ollið því.

Eftir að lífeyrissjóðirnir sameinuðust verkalýðsfélögunum um að setja fjármuni í sjóð og stofna reka starfsendurhæfingu "VIRK" hefur tekist að stöðva þessa þróun og snúa henni jafnvel við að nokkru.

Eftirminnilegt var hvernig allmargir þingmenn með Ögmund í broddi fylkingar börðust gegn þessu verkefni af alefli, enda hefur Ögmundur verið þekktur fyrir allt annað en elsku og skilning til launamanna sérstaklega á almennum vinnumarkaði.

Örorka óx mest í almennu lífeyrisjóðunum og langmest í sjóðum ófaglærðra, eða helmingi meira en í iðnaðarmannasjóðunum. Þar hafa útgjöld vegna örorku orðið til þess að það hefur orðið að skerða þar mun meira en í öðrum sjóðum.

Á það hefur verið bent, með réttu, að á svæðum þar sem hefur verið atvinnuleysi þá hafa margir Þeirra þær fengið vottorð inn á örorkuþáttinn.

Einnig hefur verið bent á þá hugarfarsbreytingu sem hefur orðið meðal íslendinga, seinni hluta síðustu aldar, það þótti ekki lengur mikil skömm að sækja bætur ef það væri hægt. Þar má benda á hugarfarið gagnvart því að segja sig til sveitar.

Ég er ekki með þessu að þetta sé ástæða þess að fólk hefur látið skrá sig sem öryrkja, en þetta er allavega töluvert mikið öðruvísi en þegar menn settu saman reiknimódel lífeyriskerfisins árið 1969, þrátt fyrir umtalsvert bættan aðbúnað verkafólks frá þeim tíma.

Kv GG Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-53114963615345194102013-07-15T13:07:01.286+00:002013-07-15T13:07:01.286+00:00Sæll aftur Guðmundur,
Hvernig má það vera að öror...Sæll aftur Guðmundur,

Hvernig má það vera að örorka hefur aukist svo mikið á Íslandi. Er einhver ástæða fyrir því:

1) Almennt verra heilbrigði
2) Slakari öryggiskröfur á vinnustöðum

o.s.frv.

Hefur þú einvherjar útskýringar á þessu því ef fjöldi öryrkja er að aukast svo mikið þá hlýtur eitthvað sem við verðum að gera betur.

Kveðja,
BjörnAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-20602077487430354812013-07-15T12:22:16.120+00:002013-07-15T12:22:16.120+00:00Stærðfræði lífeyrissjóða sjóðanna í sinni einföldu...Stærðfræði lífeyrissjóða sjóðanna í sinni einföldustu mynd er reist á því að sjóðsfélagi greiðir 12% af launum sínum í iðgjald til lífeyrissjóðs í rúm 40 ár. Þá dugar innistæða hans fyrir framangreindum lífeyri til meðalaldurs. Sá lífeyrir sem hann hefur safnað nægir til að greiða honum a.m.k. 56% af meðalævitekjum, verðtryggt.

Einfaldað dæmi hafir þú haft 400 þús. kr. meðalmánaðartekjur, (eða tekjur sem samsvara þeim tekjum á hverjum tíma) alla starfsævi þína og greitt af þeim í lífeyrissjóð, þá hefur þú greitt sem svarar liðlega 40 þús. kr. á mán. Iðgjald hefur verið hækkað nokkuð á tímanum. 40.000 x 12 mán. x 40 ár = 22 millj. kr. Farir þú á lífeyri 67 ára og lifir meðalævi færðu a.m.k. 400.ooo x 56% = 225 þús. kr. á mán (verðtryggt) x 12 mán. x 13 ár = 35 millj. kr.

Mismunurinn er ávöxtunin. Að auki hefur þú fengið örorkutryggingu og tryggingu fyrir maka inn og börn. Sú trygging er mismunandi milli sjóða.

Almennu lífeyrissjóðirnir eru sameignarsjóðir og geta staðið við þetta loforð vegna þess að jafnmargir falla frá fyrir meðalaldur og þeir sem lifa lengur.

En almennu lífeyrissjóðirnir eru eins margoft hefur komið fram í umræðu um þá að glíma við tvö feikilega erfið vandamál. Meðalaldur er sífellt að lengjast og örorka hefur vaxið langt umfram það sem gert var ráð fyrir þegar menn settust niður árið 1970 og reiknuðu út hversu mikið þurfti að greiða í lífeyrissjóð, þá var meðalaldur um 9 árum minni en hann er í dag og gert ráð fyrir að um 15% af útgreiðslum sjóðanna færi til örorku, en er komið upp í 40% í sumum sjóðanna í dag.

Lengi var iðgjald 10% en búið að hækka það í12% á síðustu misserum vegna þessarar skekkju. Þrátt fyrir þetta hafa nokkrir lífeyrissjóðir orðið að skerða réttindi um allt að 20% og það blasir við að ef ekki verður leiðrétt örorkubyrði sjóðanna, þá verða sumir þeirra að skerða enn meir.

Þingmenn og ráðherrar fundu einfalda leið út úr þessu, þeir breyttu lögum fyrir sína sjóði þannig að þar þarf aldrei að skerða, vegna þess að þeirra lífeyrissjóðir sækja það sem upp á vantar í ríkissjóð. Einnig er ávinnsla fullra réttinda hjá þeim mun hraðari en í almenna lífeyriskerfinu.
Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-31280313450375507042013-07-15T12:05:00.459+00:002013-07-15T12:05:00.459+00:003,5% ávöxtunarkrafa er það vaxtaviðmið notað í try...3,5% ávöxtunarkrafa er það vaxtaviðmið notað í tryggingarfræðilegum útreikningum um stöðu sjóðanna við gerð ársreikninga og er nauðsynlegt til þess að tryggja að hver kynslóð fái sinn hlut af sinni inneign. Ef þetta viðmið næst ekki verður að skerða útgreiðslur til þeirra sem eru fá lífeyrisgreiðslur, annars væri verið að ganga á rétt þeirra sem eru ungir í dag. Taka fjármuni unga fólksins á og greiða þá út til eldri kynslóða.

Sjóðsstjórar lífeyrissjóða verða eins og aðrir fjárfestar að láta fjármagnið vinna svo það ávaxtist. Þeir fjárfesta í skulda- og hlutabréfum frá atvinnulífinu og hinu opinbera. Þeir verða vitanlega að sætta sig við þá ávöxtun sem býðst hverju sinni. Ef ávöxtunarkostir eru slakir í dag þarf að skerða réttindi. Stundum næst meiri ávöxtun og stundum minni, en þetta er það meðaltal sem verður að nást. Þetta er misjafnt milli landa, og þar spilar inn hversu réttindakerfið er og hver meðalævi viðkomandi lands er. T.d. er vaxtaviðmiðið í Bandaríkjunum um 4.6%

Það er gert með árlegum tryggingafræðilegum útreikningum og innistæður og ávöxtun borin saman við skuldbindingar lífeyrisjóðanna. Ef ávöxtun hefur verið undir 3,5% þá verða ársfundir lífeyrissjóða lögum samkvæmt að velja milli þriggja hluta :

a) Breyta starfsreglum viðkomandi sjóðs og skerða réttindi sjóðsfélaga, eins og t.d. skerða makalífeyri eða réttindastuðul eða hækka lífeyrisaldur.
b) lækka lífeyri og örorkubætur
c) hækka iðgjöld, eða hækka lífeyrisaldur.

http://gudmundur.eyjan.is/2011/10/vaxtavimi-lifeyrissjoa.html
Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-14252922760404298412013-07-15T11:26:19.861+00:002013-07-15T11:26:19.861+00:00"Allir sem fylgjast með lífeyrismálum vita að..."Allir sem fylgjast með lífeyrismálum vita að mikil fjölgun öryrkja hefur aukið útgreiðslur úr sumum lífeyrisjóðunum. "

Er það ekki hlutverk ríkis og sveitarfélaga að sjá um hlut öryrkja. Hvers vegna eru lífeyrissjóðirnir látnir um það ?

Hefði haldið að hið opinbera hefði átt að fjármagna þann kostnað sem fellur til vegna öryrkja. Þegar þeir ná síðan aldri til lífeyristöku þá tækju lífeyrissjóðirnir við.

Hve stór er þessi þáttur í tilviki lífeyrissjóðanna ?

Kveðja,
Björn KristinssonAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-34794514171517427292013-07-15T11:21:13.113+00:002013-07-15T11:21:13.113+00:00Sæll Guðmundur takk fyrir fróðlegan pistil. Geturð...Sæll Guðmundur takk fyrir fróðlegan pistil. Geturðu skýrt nánar hvað er átt við í lið d) varðandi ávöxtunarkröfuna.
Kveðja Sævar.Anonymousnoreply@blogger.com