tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post910029896332633218..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Er verðtryggingin aðalvandinn?Guðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger10125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-52265823099195159742011-10-26T16:12:01.511+00:002011-10-26T16:12:01.511+00:00Sælir.
Það er alveg rétt hjá þér að verðtrygging e...Sælir.
Það er alveg rétt hjá þér að verðtrygging er ekki vandamálið.

Heldur sú umgjörð sem ýtir undir verðbólgu.
Hækkun á eldsneyti hækkar neysluvísitölu þótt minna sé neytt af vörunni. Sem mér finnst ekki gefa rétt mynd af neyslunni.
Verðhjöðun myndi rétta hækkun á lánum en það gerist ekki þegar öflin sem stjórna hafa valdið til að ýta verðbólgu upp.
Svo þetta er frekar slæmt mál að verðtrygging virki bara í aðra áttina þegar hún ætti að leiðrétta hlutina.

mbk
BgeAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-53133207595049543212011-10-26T09:19:06.027+00:002011-10-26T09:19:06.027+00:00Okkur vantar alvöru efnahagsstjórn og hana hefur v...Okkur vantar alvöru efnahagsstjórn og hana hefur vantað lengi. Þar er bæði okkur sjálfum að kenna sem þjóð og svo hafa stjórnmálamenn spilað á okkur með flottum leiktjöldum t.d. einsog Reykjanesbær hefur gert í góðan tíma. Verðtrygging er ekki alslæm enn hún mælir framistöðu okkar í efnahagsmálum, ef hún væri ekki myndum við bara borga hærri vexti .
KV Simmi.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-56196871995241958932011-10-26T08:25:48.730+00:002011-10-26T08:25:48.730+00:00Þegar Ólafur þáverandi forsætisráðherra samdi verð...Þegar Ólafur þáverandi forsætisráðherra samdi verðtryggingarlögin 1984 vildu nokkrir af þáverandi forsvarsmönnum stéttarfélaganna ekki semja um að binda laun við sömu vísitölu, það mynda verða til þess að halda aftur af launahækkunum. Þetta mat Guðmundar Jaka og fleiri reyndist rétt hjá þeim því laun hafa hækkað umtalsvert meira en þessi vísitölu.

Frá janúar 2000 til 2008 hækkaði fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu um 169%, en verðtrygging skulda var á sama tíma aðeins 45%, aðeins fjórðungur af hækkuninni. Lágmarkslaun í Rafiðnaðarsambandinu hækkuðu á þessum tíma um tæp 80%, aðeins fjórðungur af eignahækkuninni. Frá janúar 2008 hefur dæmið snúist við, fasteignir hafa lækkað um 10% en verðbólgan hefur verið 35%. Engu að síður er hækkun eigna yfir allt tímabilið 142% og verðbólgan 96% og búið er að semja um hækkun lægstu laun um 22%.

Ef þú tekur lán þá hefur þú tvo valkostkosti, breytilega vexti sem tengjast verðbólgustigi eða fasta vexti og svo verðtryggingu sem grípur inn þegar verðbólga fer upp fyrir föstu vextina, með örðum orðum þá er verið að fresta greiðslu þeirra vaxta sem fara upp fyrir föstuvextina. Ef fólk afþakkar þetta greiðsluform (verðtrygginguna) þá er verið að biðja um að fá að greiða alla vextina strax, er það sem fólk vill, eða veit fólk hvað það er að tala um? Afborgarnir af lánum með vöxtum yfir 20% eru öllum óyfirstíganlegar. Það er lýðskrum að halda því fram að hægt sé að henda verðtryggingunni (eftir hluta vaxtanna) og málið sé úr heiminum.

Það er ástæða þess að menn sem þekkingu hafa á þessum málum vilja að tekið sé á málinu í heild og ráðist að rótum vandans, sem er verðbólgan, og sveiflukenndur gjaldmiðill. Þetta hefur nánast öll verkalýðshreyfingin krafist, örfáir hafa krafist þess að ráðast einungs á verðtrygginguna, en án þess að skilgreina hvað eigi gera. Það er innistæðulaust skrum. Ef íslendingar vilja sleppa úr þessu er einungis ein leið það er að fá stöðugri gjaldmiðil.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-24633508499250320792011-10-25T22:57:15.734+00:002011-10-25T22:57:15.734+00:00En.
Þegar lánið er verðtryggt en launin ekki er m...En.
Þegar lánið er verðtryggt en launin ekki er maður í rauninni að taka lán í öðrum gjaldmiðli heldur en maður fær greitt í, þökk sé þjóðarsáttinni sem þið eruð svo stoltir af.
Líklega er evran eini möguleikinn til að leiðrétta þetta klúður aldarinnar sem þjóðarsáttin var. Svo vona ég að ég eigi aldrei, aldrei eftir að sjá þessháttar klúður aftur.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-68189541801318066742011-10-25T20:40:02.877+00:002011-10-25T20:40:02.877+00:00Það er fullkominn miskilningur að lífeyrissjóðirni...Það er fullkominn miskilningur að lífeyrissjóðirnir hafi verið að fá of mikið.
Þegar þú tekur lán áttu tvo valkosti fasta vexti og verðtryggingu, eða breytilega vexti.Með föstum vöxtum og verðtryggingu eru með greiðsludreifinu á þeim vöxtum sem koma ef verðbólga fer upp fyrir fasta vexti, Ef þú ert með breytilega vexti greiðir þú alla vextina strax.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-91995973672967253762011-10-25T19:55:05.444+00:002011-10-25T19:55:05.444+00:00"Á meðan okkur er gert að búa við gjaldmiðil ..."Á meðan okkur er gert að búa við gjaldmiðil sem býður upp á reglubundnar sveiflur eins og örgjaldmiðill gerir, sé óraunsætt að tala um að hægt sé að fá svipaða langtímavexti og tíðkast í þeim löndum sem eru með stöðugan gjaldmiðil og þá að losna við verðtryggingu." Rétt.
Höfum í huga misvitrar ríksstjórnir og sérhagsmunaaðila, með aðra höndina á bönkum og ríkssjóði.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-1707376509306778922011-10-25T17:28:56.174+00:002011-10-25T17:28:56.174+00:00en lífeyrissjóðir eru að fá ofgreitt útaf vísitölu...en lífeyrissjóðir eru að fá ofgreitt útaf vísitölunni sem er bjöguð! Þeir eiga ekki svona mikið skilið og fólk sem er með verðtryggð lán á ekki skilið að það sé arðrænt svona.

kv. StaðgöngubjagiAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-10236740638705174712011-10-25T17:19:27.402+00:002011-10-25T17:19:27.402+00:00Það er einmitt alveg ótrúlegt að hlusta á þingmenn...Það er einmitt alveg ótrúlegt að hlusta á þingmenn þegar þeir byrja að tala um verðtryggingu sem vandamálið. Það er ekkert annað en flótti frá raunverulegum vandamálum. Of mikil verðbólga er slæm ekki verðtrygging. Að halda að lausnin liggi í að banna verðtryggingu fjárskuldbindinga er ekkert annað en ofurheimska og algjör skortur á þekkingu í sögu.

Það verður ekki komið í veg fyrir einhverskonar verðtryggingu eða hátt verðbólguálag á vexti meðan íslenska krónan er eins steikt og hún er. Það er alveg hægt að halda í krónuna og ná stöðugleika en til þess þurfum við betri og agaðri stjórnmálamenn en við höfum haft síðuastliðin 60 ár ca og viðvarandi höft á viðskipti með gjaldeyri, ekki eins mikil og eru núna en einhversskonar takmörkun á fjármagnsflutninga milli landa. Sem þýðir úrsögn úr EES og þar af leiðir töluvert verri lífsgæði en eru hér í dag.

DudeAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-89145786793625565772011-10-25T17:01:09.440+00:002011-10-25T17:01:09.440+00:00Það er eins og sumum sé fyrirmunað að eiga vitræna...Það er eins og sumum sé fyrirmunað að eiga vitræna orðræðu. Alltaf farið í einhverja útúrsnúninga og skautað framhjá því verið er að benda á.

Allnokkrir hafa haldið því fram, þar á meðal undirritaður að ef komast eigi hjá verðtryggingu eða einhverskonar greiðsludreifingu á ofurvöxum verði að fyrirbyggja gengissveiflur.

Á meðan okkur er gert að búa við gjaldmiðil sem býður upp á reglubundnar sveiflur eins og örgjaldmiðill gerir, sé óraunsætt að tala um að hægt sé að fá svipaða langtímavexti og tíðkast í þeim löndum sem eru með stöðugan gjaldmiðil og þá að losna við verðtryggingu.

Það stendur í þessum pistli og það stendur í fjölmörgum öðrum pistlum á þessari síðu.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-40776448925679710982011-10-25T14:40:42.515+00:002011-10-25T14:40:42.515+00:00Já, en nú "deyr" verðtryggingin þegar og...Já, en nú "deyr" verðtryggingin þegar og ef Ísland gengur í ESB og tekur upp Evru, eins og þið Evru og ESB-sinnar talið alltaf um að verði svo gott fyrir alla á Íslandi.

Hvernig fer þetta saman við þennan málflutning þinn?Anonymousnoreply@blogger.com