tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post918525529587312813..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Til hamingju Jóhanna og IngibjörgGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger2125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-64149245573965536602008-06-20T09:31:00.000+00:002008-06-20T09:31:00.000+00:00Eru ekki draumar þeirra sem vilja Íbúðalánasjóð fe...Eru ekki draumar þeirra sem vilja Íbúðalánasjóð feigan að rætast?

Sjá t.d. http://www.gudmundsson.net/index.asp?lesa=pistlar&p=nanar&i=284

RómverjiAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-55717612335059400802008-06-20T09:09:00.000+00:002008-06-20T09:09:00.000+00:00Geir H. Haarde í ræðu 7. apríl 2005:Íbúðalánasjóðu...Geir H. Haarde í ræðu 7. apríl 2005:

Íbúðalánasjóður og bankarnir
Bankarnir komu á síðasta ári með myndarlegum hætti í fyrsta sinn inn á markaðinn fyrir fasteignaveðlán í beinni samkeppni við Íbúðalánasjóð. Lánsviðskipti á þessum markaði eru að mínum dómi eðlileg framþróun fyrir bankana og breikka grunn útlána þeirra á sviði, þar sem áhætta er tiltölulega lítil. Jafnframt er þessi þróun mjög í takt við það sem tíðkast hefur í nálægum löndum.

Ekki er vafi á því að einkavæðing bankanna, aukin stærð þeirra og styrkur í kölfarið, á stóran þátt í því að þeir töldu sér óhætt að leggja út á þessa nýju braut. Með þeirri vaxtalækkun á langtímalánum til fasteignaviðskipta, sem þessari þróun fylgdi, má segja að einkavæðingin hafi með beinum hætti bætt lífskjörin í landinu. Það sjáum við einnig fyrir okkur varðandi sölu Símans þótt í öðru formi verði. Þess vegna er erfitt að koma auga á rökin gegn slíkum breytingum.

Framvindan á íbúðalánamarkaðnum vekur upp spurningar um eðlilega verkaskiptingu milli hins ríkisrekna Íbúðalánasjóðs og bankanna. Sjóðurinn mun vissulega áfram hafa mikilvægu hlutverki að gegna en ég tel eðlilegt að hlutur hans beinist í framtíðinni í meira mæli að félagslegum þáttum og þeim landshlutum sem markaðurinn sýnir minni áhuga. Slík breyting er úrlausnarefni á hinum pólitíska vettvangi og fara þarf vandlega yfir alla þætti þess máls, m.a. með hliðsjón af þeim gríðarlegu ábyrgðum sem hvíla á ríkissjóði vegna Íbúðalánasjóðs [...].

Ég vil segja um þessi mál að endingu að það verður að ætlast til þess af bönkunum – og vísa ég þá til þess sem ég áður sagði um samfélagslega ábyrgð - að þeir leggi sitt af mörkum með skynsamlegri ráðgjöf til sinna viðskiptavina, til að koma í veg fyrir að heimilin í landinu steypi sér í stórum stíl út í óviðráðanlegar skuldir til að fjármagna neyslu líðandi stundar."

http://www.fjarmalaraduneyti.is/radherra/fyrri-radherrar/GHH/nr/3781

Bankarnir stuðluðu einmitt að því að heimilin í landinu steyptu sér "í stórum stíl út í óviðráðanlegar skuldir".

RómverjiAnonymousnoreply@blogger.com