tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post9223205427321221706..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: LífeyrissjóðirnirGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger15125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-64458030416032653302010-12-12T20:46:40.683+00:002010-12-12T20:46:40.683+00:00Vill þakka þér Guðmundur fyrir það þor og dug sem ...Vill þakka þér Guðmundur fyrir það þor og dug sem þú sýnir með því að ráðast að þessum sora sem umræðan um lífeyriskerfið er orðið.

Það er ótrúlegt hvernig menn endurtaka vitleysurnar aftur og aftur og hlusta ekki á staðreyndir.

Hvernig getur 8% tap af nafnvirði eigna orðið að 33% tapi?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-11176078392707817022010-12-12T20:07:01.640+00:002010-12-12T20:07:01.640+00:00Ég skil ekki þennan pirring út af því að ég skrifi...Ég skil ekki þennan pirring út af því að ég skrifi pistil þar sem ég segi að mér finnist ásakanir í garð starfsfólks lífeyrissjóða vera komnar of langt þegar allt starfsfólk lífeyrissjóða er sakað um að vera ruddalegir glæpamenn sem starfi vísvitandi gegn hagsmunum sjóðsfélaga.

Ég þekki nokkra af starfsmönnum lífeyrissjóða og alla sem starfa í mínum sjóð og þetta er vel gert og vandað fólk sem reynir að sinna sínum störfum eins vel og það getur.

Ef einhver í rafiðnaðargeiranum hefur eitthvað við okkar sjóð að athuga þá kemur viðkomandi því á framfæri á sjóðsfélagafundum eða með beinum fyrirspurnum til starfsmanna. Stundum í gegnum okkur starfsmenn Rafiðnaðarsambandsins.

Ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta er hjá öðrum sjóðum, en reikna með að menn geti komið sínm aths. á framfæri við starfsmenn viðkomandi sjóðs.

Í a.m.k. einni aths. er því haldið fram að ég sé eitthvað viðriðin ákvarðanir um fjárfestingar lífeyrissjóða, svo er ekki, ég hef aldrei komið að slíkri ákvarðanatöku, reyndar er fjárfestingastefna lífeyrisjóðsins borinn undir ársfund og afgreidd þar og þar hef ég greitt atkvæði eins og aðrir fundarmenn.

Annarsstaðar er enn einu sinni mér gerðar upp skoðanir um að ég sé á móti aðkomu lífeyrissjóða að skuldastöðu heimila, það hef ég aldrei sagt. Ég hef aftur á móti bent á hvaða lög gildi um þessa hluti.

Ég veit að það er einhver hópur manna sem vill láta á það reyna verði teknir fjármunir úr lífeyrissjóðum og þeir nýttir til skuldaniðurfellingar. Ég er ekki í þeim hóp. Ég vill að gengið verði frá málum á þeirri niðurstöðu sem fékkst um daginn, en það á vitanlega að kanna hvort hún sé ekki örugglega lögmæt.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-65154128570675109812010-12-12T19:45:15.598+00:002010-12-12T19:45:15.598+00:00Ég trúi því að þetta grín endurspegli almennt viðh...Ég trúi því að þetta grín endurspegli almennt viðhorf til lífeyrissjóða í þjóðfélaginu um þessar mundir.

Sú mynd að þið séuð einráðir um ráðstöfun sjóðanna og getið beitt þeim í eigin þágu virðist ekki fjarri því sem gerðist hér og þar við stjórnun lífeyrissjóða, þó svo það eigi ekki við um nema suma þeirra.

Miðað við alla þá sjóði sem gufuðu nánast upp með öllu og aðrar sem gltruðu niður um þriðjungi af lífeyrisréttindum sinna félagsmanna, þá sé ég ekki lágkúru í því að líkja stjórnarmönnum lífeyrissjóða við glæpamenn.

Úr því að þessi árangur er allt og sumt sem fæst fyrir stærsta hluta af því sem flest okkar leggja fyrir á ævinni, Þá vil ég frekar sjá þá peninga sem ég greiði í lífeyrissjóð fara beint í að greiða upp lífeyrisskuldbindingar í þjóðfélaginu í nútíðinni.Bragi Jóhannssonhttps://www.blogger.com/profile/16025972666210010149noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-41875579301755673682010-12-12T19:27:37.091+00:002010-12-12T19:27:37.091+00:00Ef að allt er góðu hjá lífeyrissjóðum þá ættu menn...Ef að allt er góðu hjá lífeyrissjóðum þá ættu menn ekki að óttast opinbera rannsókn á fjárfestinum þeirra síðastliðin ár.Sigurður Sigurðssonhttp://sigur.blog.isnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-50597393082674950072010-12-12T17:45:07.829+00:002010-12-12T17:45:07.829+00:00Þinn sjóður leyfir þér og þínum kannski að sjá og ...Þinn sjóður leyfir þér og þínum kannski að sjá og skoða ársreikningana - alla?
Það er meir en minn sjóður gerir, þ.e. VR.
Afhverju fæ ég ekki að skoða þá? skýringar fást ekki, bara sagt það hafi ekki tíðkast og allar helstu lykiltölur séu birtar - annað komi mér ekki við. Ekki það nei.
Hjá VR hefur það tíðkast að vinnuveitendur eiga sæti í stjórn sjóðsins - hvers vegna? hvað hafa þeir um peningana okkar að segja?
Af hverju fengu og VILDU lífeyrissjóðir fjárfesta peninga okkar að okkur forspurðum í Vestia?
Þetta er mjög svo vafasöm fjárfesting og FYRIR hverja var hún?
Tók þinn lífeyrissjóður ekki þátt í þeirri "fjárfestingu"? Varla getur þú verið ánægður með það?
Annars er það alveg frábært Guðmundur ef þú ert sáttur og ánægður með þinn sjóð og óskandi að það væru fleiri. Það eru hins vegar langt frá því allir. Leyfist okkur ekki að lýsa yfir óánægju okkar með eigin lífeyrissjóð?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-38881039656505514462010-12-12T16:54:51.750+00:002010-12-12T16:54:51.750+00:00Í þeim lífeyrissjóð sem ég er í þá eru haldnir sjó...Í þeim lífeyrissjóð sem ég er í þá eru haldnir sjóðsfélagafundir þar sem sjóðsfélagar geta komið og sett fram aths. og eins tekið þátt í kosningum.

Það er ótrúlegt hvað þetta fer í taugarnar á sumum að ég skuli voga mér að benda á þessar staðreyndir og þær endaleysur sem menn vilja halda í.

Það réttlætir ekki að ausa svívirðingum yfir menn og bera á saklaust fólk svívirðilegar ásakanir.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-31172991002038587732010-12-12T16:46:37.662+00:002010-12-12T16:46:37.662+00:00Eitt atriði enn, já það fer fram ritskoðun á þessa...Eitt atriði enn, já það fer fram ritskoðun á þessari síðu, það kemur fram á forsíðunni.

Ef menn senda inn aths. sem innifela rógburð og innistæðulausar dylgjur um fólk, þá er það ekki birt.

Ég er ritstjóri þessarar síðu og kæri mig ekki um að menn nýti sér hana til þess að ráðast að saklausu fólki í skjóli nafnleysis.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-56137517232011756522010-12-12T16:43:14.915+00:002010-12-12T16:43:14.915+00:00Á fundum í tenglsum við þann sjóð sem ég er í hefu...Á fundum í tenglsum við þann sjóð sem ég er í hefur verið farið ítarlega yfir þær fjárfestingar, sem hann hefur verið í.

Á sjóðsfélagafundum er farið ítarlega yfir ársreikninga sjóðsins, launakjör og starfsemina.

Ástæða er að benda á að samningar við fjárfestingafyrirtæki sem sjá um umsjón fjárfesingsjóða eru alltaf veltubundnir, það þýðir að þær tölur sem menn halda fram að muni sparast með því að sameina lífeyrissjóði eru hreinlega kolrangar.

Stjórnendur þeirra lífeyrissjóða sem ég þekki til borgar sjálfum sér ekkert. Það eru stjórnir sjóðanna sem ákvarða launakjör starfsmanna og þau borinn upp á ársfundi.

Ég veit hvaða laun starfsmenn okkar sjóðs eru enda hafa þau verið til umræðu á fundum á vegum sjóðsins, auk þess að það er ekki haldin fundur innan Rafiðnaðarsambandsins án þess að fjallað sé um starfsemi þess lífeyrissjóðs sem flestir rafiðnaðarmenn eru í.

Engin starfsmaður er með milljónir í laun og hefur aldrei verið.

Engin þeirra ekur um á bíl sem sjóðurinn á. Þeir bílar sem starfsmenn okkar sjóðs eiga eru allt venjulegir fjölskyldubílar og þeir eiga þá sjálfir.

Sjóðir hafa verið að sameinast og munu örugglega gera það áfram. Það er rétt að eðlilegast væri að sjóðirnir væru 5 - 8 og það mun vafalaust gerast á næstu árum.

En ég er ekki viss um að það muni gerast eftir einhverri tilskipun utan úr bæ, það eru sjóðsfélagar sem taka þær ákvarðanir, eins og ég er að reyna að benda á.

Það er ljóst að sjóðirnir þurfa að bæta í hvað varðar greiningarvinnu.

Mér finnst það einkennilegt að kalla það vælur að ég skuli leyfa mér að benda á að mér finnist það ósanngjarnt að starfsmenn lífeyrissjóðanna séu kallaðir glæpamenn. Reyndar fullyrða sumir að starfsmenn stéttarfélagana fari með mál lífeyrissjóða, svo er ekki, því fer víðsfjarri.

En það er svo oft að þegar bent er á það ranga í málflutningi sumra að þeir bregðast við með sama hætti og þegar leikföng eru tekin frá óþekkum krökkum.

Þeir starfsmenn lífeyrissjóða sem ég þekki eru allt vandað og gott fólk og mér finnst þessi umræða vera þeim sem hana bera uppi til háborinnar skammar

Sumir eru með innistæðulausar alhæfingar og oftar en ekki eru þær þess eðlis að við blasir að sá sem talar veit sáralítið um starfsemi og uppbyggingu lífeyriskerfisins.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-48519741288293036182010-12-12T15:05:38.498+00:002010-12-12T15:05:38.498+00:00Forstjóra launin í lífeyrissjóðnum Stafir eru 17.2...Forstjóra launin í lífeyrissjóðnum Stafir eru 17.236.680 á ári.
Meðallaunakostnaður á hvert stöðugildi kr.8.825.434 þetta gildir fyrir 2009 en hefur verið lækkað eftir því sem Guðmundur segir.

Í góðu samræmi við það sem þekkist og vafalítið hæft fólk.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-48551887080929785922010-12-12T15:00:39.552+00:002010-12-12T15:00:39.552+00:00"Laun starfsmanna eru í samræmi við það sem þ..."Laun starfsmanna eru í samræmi við það sem þekkist..."

Finnst nú ýmislegt þekkt vera mjög rangt...

Veit ekki hvað margir hafa verið teknir fyrir í hinum og þessum þáttum, en það má kannski ekki vera vondur við ykkur. Enda gríðar heilagir.

En hringjum á vælubílinn.

KOMMON

- Að lokum legg ég til að lífeyrissjóðum verði fækkað í 3. 5 í mesta lagi.

Ó.S.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-30119890146409910102010-12-12T14:50:42.478+00:002010-12-12T14:50:42.478+00:00Guðmundur, af hverju er ekki byrjað að rannsaka lí...Guðmundur, af hverju er ekki byrjað að rannsaka lífeyrissjóðina?
Þá verður að rannsaka!
Þú virðist þekkja vel einn lífeyrissjóð og alhæfa út frá honum.
Af hverju virðist það vera þannig með marga lífeyrissjóði að stjórnendum þeirra er/var heimilt að nota fé þeirra í áhættufjárfestingar (fjárhættuspil) en ekki til að hjálpa sjóðsfélögum?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-90612883234345402602010-12-12T14:29:48.750+00:002010-12-12T14:29:48.750+00:00Óskaplega geta menn verið hér hörundsárir. Sá ekk...Óskaplega geta menn verið hér hörundsárir. Sá ekki þennan þátt Spaugstofunnar, en þar hafa menn í áraraðir gert miskunarlaust grín af æði mörgum í samfélaginu. Ekki hefur Forsetinn kveinkað sér og heldur ekki Biskupinn. En þegar kemur að því að horfa með spéspegli á forsvarsmenn lífeyrissjóðanna er farið í fantafýlu og talað um lágkúru !

Talsmenn lífeyrissjóðanna eru ekki miklir bógar ef þeir þola ekki ágjöf Spaugstofunnar. En svo sem ekki í fyrsta sinn sem Guðmundur Gunnarsson hrekkur í fýlugírinn af minnsta tilefni.

Einar SveinbjörnssonUnknownhttps://www.blogger.com/profile/06459648097772977742noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-91135239952736270742010-12-12T13:33:42.375+00:002010-12-12T13:33:42.375+00:00Nú veit ég ekki hvernig þetta er hjá öðrum sjóðum ...Nú veit ég ekki hvernig þetta er hjá öðrum sjóðum en í sá sjóður sem ég er í á ekki neinn bíl. Þessar endalausu alhæfingar eru ansi þreyttar. Laun starfsmanna sjóðsins eru í samræmi við það sem þekkist og voru lækkuð við Hrun.Guðmundurhttps://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-72447508540575989002010-12-12T11:54:19.191+00:002010-12-12T11:54:19.191+00:00Ef að þeir fara svona varlega í fjármunum, hvers v...Ef að þeir fara svona varlega í fjármunum, hvers vegna fjárfestu peninga okkar í Vestia? Án þess að spyrja kóng né prest? er það ekki samansafn af fyrirtækjum sem eru langt langt frá því að teljast örugg fjárfesting?
Af hverju eru ársreikningar lífeyrissjóða ekki galopnir eigendum þeirra?
Því skyldu stjórnendur þeirra leyfa sér að borga sjálfum sér milljónir í laun og aka um á rándýrum bílum - allt á okkar kostnað'
Getur þú svarað þessum spurningum?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-68415527101913655002010-12-12T11:37:27.903+00:002010-12-12T11:37:27.903+00:00Þú verður samt að viðurkenna að tilvísun í flotta ...Þú verður samt að viðurkenna að tilvísun í flotta bíla undir stjórnendur lífeyrissjóða var gott hjá spaugstofunni.
Það er hvergi skráð í lög okkar sjóða að þeir eigi öll þessi hlunnindi skilið.
Við getum alveg verið með góða stjórnednur án þessa að borga fyrir það fáránlegar upphæðir, sjálfur ertu á skikkanlegum launum svo því ekki þeir.
mbkAnonymousnoreply@blogger.com