tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post997697592606581602..comments2023-11-06T08:52:13.980+00:00Comments on Guðmundur: Eitt árGuðmundurhttp://www.blogger.com/profile/01409610786617345893noreply@blogger.comBlogger4125tag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-63531291068728370932008-11-16T17:33:00.000+00:002008-11-16T17:33:00.000+00:00Guðmundur Gunnarsson er maður til að svara fyrir s...Guðmundur Gunnarsson er maður til að svara fyrir sig og gerir það vafalaust. Manni finnst hinsvegar stundum örla á því að sumir andstæðingar verðtryggingar vilji fá aftur framsóknaráratuginn milli 1970 og 1980, þegar enginn borgaði sannvirði skulda sinna til baka. Þá var lagður grunnurinn að veldi sumra, kannski flestra, þeirra aðila sem hafa ráðið öllu hér undanfarið og hafa farið með allt hér til fjandans. En til að hægt sé að fá lán, verður einhver að leggja fyrir. Ef þeir, sem leggja fyrir, fá ekki raunvirði sinna peninga til baka, heldur að þeir brenni upp á sama hátt og þeir gerðu á framsóknaráratugnum 1970-1980, þá verða engir peningar til að lána. Þetta verður því miður ekki lagað nema með alvöru gjaldmiðli.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-19524707393060758142008-11-16T16:46:00.000+00:002008-11-16T16:46:00.000+00:00Hvar var verkalýðshreyfingin á laugardaginn, Guðmu...Hvar var verkalýðshreyfingin á laugardaginn, Guðmundur? Hvar hefur verklýðshreyfingin verið undanfarnar vikur? 8000 manns mæta algjörlega að eigin frumkvæði og enginn talsmaður verkalýðsins sjáanlegur? Eruð þið kannski of upptekin við að "standa saman"? Ætlið þið bara að bíða eftir evrunni en láta verðtrygginguna setja fólk á hausinn og gera borgunarmenn að bótaþegum á meðan? Eruð þið búin að gefast upp fyrir verðtryggingunni, skrýmslinu sem þið bjugguð til sjálf? Hvar voru kröfuspjöld og fánar verkalýðsins á laugardaginn? Eru þau bara geymd í kjallara í Borgartúni og rykið dustað af þeim upp á punt 1. maí?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-28715285403507535572008-11-16T15:01:00.000+00:002008-11-16T15:01:00.000+00:00Það virðist hafa farið framhjá ansi mörgum úr hópi...Það virðist hafa farið framhjá ansi mörgum úr hópi svokallaðs almennings, að bæði innlendir og sérstaklega erlendir (OECD) aðilar hafa bent á þá gríðarlega auknu skattbyrði, sem launalægstu hóparnir hafa verið látnir taka á sig, einkum og sér í lagi í stjórnartíð Halldórs og Davíðs. Mest hefur verið níðst á þeim sem lifa á lífeyrisgreiðslum og opinberum bótum með því annarsvegar að halda bótagreiðslum niðri og hinsvegar og ekki síst með því að halda skattleysismörkum niðri í krónutölu án tillits til verðþróunar. Nú verður augljóslega enn frekar höggvið í þennan knérunn með því að lífeyrisbætur almennra launþega stórskerðast vegna þeirrar verðrýrnunar, sem verður á vörslufé lífeyrissjóða almennings.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3809169154320301236.post-12387593435074054282008-11-16T14:57:00.000+00:002008-11-16T14:57:00.000+00:00kjosa.iskjosa.isAnonymousnoreply@blogger.com