þriðjudagur, 29. janúar 2013

Forseti sáttar og samlyndis


Ólafur Ragnar hefur í dag einstakt tækifæri til að verða forseti sáttar og samlyndis, í stað deilna og sundurlyndis. Sjáum hvort honum ber gæfa til að nýta það.
 
En það er til aldagömul reynsla sem nefnd er messíasarkomplex. Hann lýsir sér í yfirmáta heilbrigðri sjálfsmynd og bjargfastri trú – reistri á sannleik sem öðrum er hulinn - fyrir því að hann sjálfur og enginn annar geti bjargað tiltekinni þjóð frá glötun.
 
Þessu skylt er upprisuheilkennið, sem birtist í endurkomu frelsarans.
 
Hátti svo til að kjósendur í lýðræðisríki kjósi, kosningar eftir kosningar einstaklinga án þess að huga að getu þeirra til að sinna störfum sínum, þá er ábyrgðin á slökum verkum embættis- og eftirlitskerfisins ekkert síður kjósendanna en þeirra sem afglöpin frömdu.
 
Hverjir voru við völdin þegar Icesave var afskiptalaust komið á koppinn? Hverjir fóru um heimsbyggðina og boðuðu fagnaðarerindi hins Íslenska efnahagsundurs?
 
"You ain't seen nothing yet".