Það er ríkjandi hefð meðal stjórnmálamanna að geta ekki nálgast ákvarðanatöku út heildstæðu mati með góðri yfirsýn. Umræða þeirra snýst alltaf um einstakar ákvarðanir. Dæmi: Tekið er á dagskrá Alþingis málið um hvort selja eigi orku til útlanda. Með eða á móti?
Ef einhver spyr; "Þarf þá ekki að reisa virkjanir og reisa mikið af háspennulínum?"
Svar stjórnmálamannsins; "Þau mál er ekki á dagskrá núna, við erum að tala um hvort selja eigi orku til útlanda. Síðar munum við setja á dagskrá spurningu um hvort reisa eigi virkjanir. Með eða á móti?"
Og svo seinna í vetur verður tekið á dagskrá málið hvort reisa eigi háspennulínur. Með eða á móti?
Ef við lítum yfir nálgun formanns fjárlaganefndar, blasa þessi vinnubrögð við.
Í sumar ákvað nýkjörin ríkisstjórn að lækka framlög útgerðarfyrirtækja og ferðþjónustufyrirtækja til samfélagsins um eitthvað á annan tug milljarða. Í kjölfar þess komu fram frumvarpsdrög að fjárlögum þar sem útgjöld til velferðarkerfisins eru skorun töluvert niður, til viðbótar við niðurskurðinn bætist einnig sú hækkun sem hefði þurft að koma vegna þegar framkominna og fyrirliggjandi hækkana á rekstri ríkisstofnana.

Þetta varð til þess ríkisstofnanir tilkynntu að þær
kæmust ekki hjá því að fækka starfsfólki enn frekar, auk þess að aðbúnaður
starfsfólks yrði óásættanlegur, var þó verulega slæmur fyrir.
Mannekla var í heilbrigðiskerfinu og stefnir
augljóslega í að hún verður enn meiri af þessu orsökum.
Þá kemur formaður fjárlaganefndar og segir að úr þessu
megi bæta með því að fjölga nemum í læknisfræði og stofna að auki nýja
námsdeild fyrir lækna á Háskólanum á Akureyri.
Hér skil ég ekki hvert formaður fjárlaganefndar er að
fara. Var ekki verið að lækka framlög til háskólanna?
Ég skil heldur ekki hvernig þessi tillaga formanns
fjárlaganefndar eigi að leiða til fjölgunar lækna. Spítalarnir eru nefnilega að
segja upp fólki sakir þess að það eru ekki til fjármunir til þess að greiða
núverandi starfsfólki laun.
Fjöldi lækna og heilbrigðisstarfsmanna er að fara
erlendis sakir þess að þeim standi einfaldlega ekki tilboða störf hér á landi, auk þess að aðbúnaður er óviðunandi.
Formaður fjárlaganefndar fór þar að auki fremst allra fyrir
því að afþakka nokkra milljarða króna sem fengust frá ESB til rannsókna, auk
þess að fjárlaganefnd ákveður að lækka alla íslenska rannsóknarstyrki.
Við það missa að auki tugir íslenskra háskólamenntaðra
manna störf sín.
Þá kemur formaður fjárlaganefndar fram með þá tillögu
að það eigi að refsa því háskólamenntuðu fólki sem ekki komi heim að loknu
námi, með því að hækka verulega vexti á námslánum þeirra.
Bíddu aðeins; Standa þeim til boða einhver störf hér á
landi?
Þá kemur fram tillaga frá ríkisstjórninni að það eigi
bara að stytta nám starfsmanna ríkisins.
Stendur til að keyra laun niður í landinu til þess að leysa vanda
fjárlaganefndar, sem hún kom sér sjálf í með því að fella niður framlög
útgerðarfyrirtækja til samfélagsins og afþakka milljarða styrki frá ESB?
Það er ekki hægt að skilja formann fjárlaganefndar
öðruvísi en svo að hún virðist ætla að krefjast þess að vel menntað fólk komi
hingað heim til þess eins að skrá sig á Atvinnuleysistryggingasjóð.
Og ef það gerir það ekki, þá ætli hún að sekta þau með
því að hækka afborganir námslána.
Afsakið en ég skil nákvæmlega ekkert hvert hæstvirtur
formaður fjárlaganefndar er að fara. Hana virðist skorti alla yfirsýn, geti
einungis skoða eitt mál í einu, án tengsla við heildarmyndina.
Hún væri allavega fullkomlega óhæf til allra
samningastarfa í Karphúsinu
6 ummæli:
Hún er því miður ekki á förum!
Til þess að snúa öllum í hringi með bulli. Svo umræðan snúist ekki um réttu málin.
"Höchste Zeit", að innbyggjarar fari að hugsa sinn gang betur, annars fer ílla fyrir þjóðinni.
Þeir senda ignoranta og vandræða gemlinga ekki aðeins á Alþingi, en einnig á Bessastaði.
Haukur Kristinsson
Formaður fjárlaganefndar er ekki fær um að hugsa af viti um eitt mál í einu, hvað þá fleiri. Þú sækir ekki vit til Vigdísar fremur en pening í tóma pyngju.
Blessuð konan er núna að blanda saman ,,olíurafmagni og vatnsaflsrafmagni".
peogyno
Vigdís heldur enn eina vísdómræðuna á Alþingi og segir það forkastanlegt ef það standi til að blanda saman hreinu Íslensku rafmagni við óhreint ESB-rafmagn, svo maður tali nú ekki að menn ætli sér að setja sæstreng í sjó. Og við eigum svo að lifa þá áhættu að sæstrengur sem sé í sjó geti flutt rafmagn í báðar áttir.
https://www.facebook.com/photo.php?v=10151964099373744&set=vb.634573743&type=2&theater
Skrifa ummæli