„Ákveði
Íslendingar að hætta aðildarviðræðum mun að sjálfsögðu enginn neyða þá til að
halda áfram. Evrópusambandið sótti ekki um að Ísland gerðist meðlimur, og aðildarríkin
samþykktu að fara í viðræður og við hófum þær.“ segir Peter Stano hjá
stækkunarskrifstofu Evrópusambandsins. „Það er undir Íslendingum komið hvort
þeir vilji halda áfram. Ákveði þeir að hætta aðildarviðræðum mun að sjálfsögðu
enginn neyða þá til að halda áfram og enginn mun reyna að koma í veg fyrir
það.“
Það er
barnalegt að halda því fram að ESB löndin sækist eftir því að komast yfir
auðlindir Íslands til þess að bjarga efnahag ESB. Jafnvel þó allt yrði virkjað
hér á landi sem hægt er að virkja dugar það einungis til þess að skapa orku
fyrir eina litla borg eins og t.d. Árósa eða Gautaborg. Ástæða er að minna á að
Danir eiga sínar olíu og gaslindir í Norðursjó eins og Englendingar og Svíar
eiga sín námur og Finnar sína skóga.
Fram
eru komnar vangaveltur innan ESB hvort sambandið vilji aðild að samningum sem
innihalda mikinn lýðræðishalla eins og EES samningur er og hvort EES löndin séu
að borga “eðlilegt” verð fyrir EES aðild? Á grunni þessa eru verulegar líkur á
að ESB muni endurskoða aðildargjald að EES, enda þurfi að tryggja að full ESB
aðild sé alltaf mun fjárhagslega hagkvæmari en aukaaðild í gegnum tvíhliða
samninga eða EES.
Að
slíta ESB viðræðum verður því varla kostnaðarlaust fyrir Ísland, ásamt því að
samningsstaða Íslands mun að sama skapi veikjast enda mun Brussel halda á góðum
spilum á meðan Ísland segir nei við ESB en já við EES. Það verður ekki bæði
haldið og sleppt í þessu mikilvæga máli. EES áskrift verður alltaf
ólýðræðislegri en full ESB aðild. Í umræðunni í vetur verður að fjalla einnig
um framtíð EES samningsins og framtíð hans eftir að ESB aðildarviðræðum verður
slitið.
Ein
helsta ástæða þess að margar þjóðir hafa sótt um aðild að ESB er til þess að
uppræta spillingu og klíkusamfélag og koma á eðlilegum stjórnarháttum, ekki
síst í efnahagsmálum. Þetta er helsta ástæða þess að launamenn hér á landi
sækjast eftir aðild. Helsta markmiðið er að ná þeim efnahagslega stöðugleika
sem íslendingar hafa farið á mis við allt frá stofnun lýðveldisins. Það hefur
bitnað mest á launamönnum. Örgjaldmiðill studdur af risastórum
gjaldeyrisvarasjóðs sem kallar árlega á tugamilljarða vaxtaútgjöld fyrir
íslenskt samfélag. Lækkun vaxta og stöðugleiki myndi lækka útgjöld heimilanna
umtalsvert, auka kaupmátt og um leið auka fjárfestingar í atvinnulífinu og
fjölga störfum.
Í þessu sambandi er full ástæða
að minna á að endurskoðun allra kjarasamninga í landinu er að hefjast, þar
blasir við mikil spenna milli starfsgreina. Útflutningsgreinarnar hafa notið
góðs af því að krónan hrundi. Nokkrar starfsgreinar fengið mun meira launaskrið
en aðrar, þar helst einnig í hendur að þar er atvinnuleysi og kaupmáttarhrap
mest. Ekki einungis vegna minna launaskriðs og meira atvinnuleysis, margir
þeirra sem hafa vinnu í þessum greinum hafa ákaflega takmarkað vinnumagn.
Starfsmenn þessara starfsgreina
sætta sig ekki við að sitja eftir og krefjast í dag mikilla launahækkana og að
raungengi krónunnar verði hækkað. Þessi mál er ekki hægt að leysa til langframa
án þess að aflétta höftunum á gjaldmiðlinum og við það verkefni ræður Ísland
ekki hjálparlaust.
3 ummæli:
Vilt þú semsagt meina það Guðmundur að spillingar og klíkusamfélög þrífist ekki innan ESB? Og finnst þér hafa verið mikill agi innan ESB í fjármálum?
kv
Gunnar Jóhannsson
Já Gunnar, það hefur reyndar komið fram í fjölmörgum pistlum mínum hér og hjá öðrum. Íslenskir ráðamenn virtu að vettugi aðvaranir norrænu og enskra ráðherra sem varð síðan til þess að hér varð kerfishrun. Ísland féll vegna þess að ofurskuldsettur einkageiri dró ríkið með sér niður.
Í dag blasir við hvernig íslenskir stjórnmálamenn földu sannleikann og drógu upp falska mynd. Hér má minna á orð þáverandi íslenskra ráðherra um íslenska efnahagsundrið og að norrænir kollegar þeirra ættu að fara endurmenntun úr þeir virtust ekki skilja snilli íslendinga. Snillin er fólgin í því að hafa handstýrðan gjaldmiðil sem reglulega er felldur og kostnaður færður yfir á launamenn. Þetta gerðist ekki t.d. í löndum sem lúta agaðri efnahagsstjórn eins og t.d. í nágrannlöndum okkar, þar urðu ekki 20 þús. heimili gjaldþrota og þar tóku skuldir ekki stökkbreytingum.
Rótina að efnahagshamförnum má finna á auknu frjálsræði í fjármálaheiminum. Markaðir vissu allt og gátu, en ríkið þvældist fyrir. Ísland varð þar af leiðandi eitt helsta fórnarlamb hugmyndafræðinnar um hinn frjálsa markað. Þar var fjármálastofnunum og viðskiptamönnum gefinn laus taumurinn og fjármálamenn fóru að búa til eigin fjármálaafurðir án tillits til stöðugleika kerfisins. Afurðir sem reyndust á endanum með öllu verðlausar. Afreglun átti að leiða menn frá klíkuskap, pólitískri spillingu og sérhagsmunum, en hún leiddi samfélögin inn í stórkostlega eignatilfærslur frá almenning til fárra.
Þurfum við ekki bara að taka til í okkur sjálfum? ESB mun ekki gera það fyrir okkur og það er mikill misskilningur hjá þér að spilling og klíkuskapur þrífist ekki innan ESB ríkja. Líttu t.d. á grikkland, ítalíu og fleiri ríki þar sem spilling og klíkuskapur blómstrar sem aldrei fyrr.
Mesta frelsið sem okkur hefur verið fengið var fólgið í EES samningnum með frjálsu flæði fjármagns, sem var forsenda þess að við gátum farið í hina blessuðu útrás okkar. Við kunnum ekki með þetta frelsi að fara og því fór sem fór. Stjórnendur íslenskra fjármálastofnana voru upp til hópa nýgræðingar í faginu og gáfu lítið fyrir gamla og reynda bankamenn. Þetta hafði ekkert með frjálsan markað að gera, heldur miklu frekar heimsku og dómgreindarskort.
kv
Gunnar Jóhannsson
Skrifa ummæli