Stjórnmálamönum hefur
undanfarin ár verið tíðrætt um að til standi að lagfæra stökkbreytingu lána og
það yrði gert með því að strika verðtryggingu út. Ráðherrar komu fram í
fjölmiðlum veturinn 2010 og sögðust ætla að gera þetta með því taka þá fjármuni,
sem til þessa þyrfti úr lífeyrissjóðunum.
Í kjölfar yfirlýsinga
ráðherranna höfðu allmargir sjóðsfélagar samband við stjórnir sjóðanna og bentu
á að það væru í gildi landslög og reyndar einnig stjórnarskrá, sem gerði þessa
leið ófæra. Þingmenn gerðu ásamt nokkrum þekktum lýðskrumurum hróp að sjóðsfélögum
og nefndu meðal annars „þrönga lagatúlkun!!“
Þessi
leið hefði þýtt líklega allt að 3% skerðingu á bótum lífeyris- og örorkuþega í
sumum almennu sjóðanna. Sjóðsfélagar opinberu sjóðanna myndu ekki verða fyrir
skerðingum. Skuld ríkissjóðs við opinberu lífeyrissjóðina er í dag um 500
milljarðar og hækkar um tugi milljarða á ári og mun vaxa hraðar á komandi árum sakir
þess að stóru barnasprengjuárgangarnir eru að nálgast á lífeyrisaldur.
Útgjöld
Tryggingarstofnunar hækka ef lífeyrir frá lífeyrissjóðunum lækkar. Auknar
skuldir ríkisjóðs vegna lífeyrisskuldbindinga og aukin útgjöld TR, kalla á enn
frekari niðurskurð eða hækkun skatta. Hagdeild ASÍ telur að ekki verði komist
hjá um 4-6% hækkun skatta og sú ákvörðun verði ekki dreginn lengur en í mesta
lagi 4 ár. Ef lífeyriskerfið verður lagt í sömu rúst að það lá árið 1980, mun
það kalla þar að auki á umtalsverða skattahækkun.
Flöt lækkun lána kemur þeim best
sem mest hafa milli handanna, 80% af þeim fjármunum hafnar í vösum þeirra sem
ekki þurfa á því að halda. Það sem nær til þeirra sem eru í vanda, það er að
segja barnafjölskyldur og einstæðir foreldrar, verður of lítið til þess að
bjarga þeim frá vandanum.
Í dag bendir flest til þess að kjósendur
vilji að stjórnmálamenn hleypi efnahagslífinu í enn eitt verðbólgubálið. Þeir lofa
að gera „allskonar ýmislegt“ fyrir landsmenn komist þeir til valda. Þeir nefna
ekki hver eigi að standa straum af kostnaðinum, en það blasir við að þeir ætla
að taka enn eitt fixið, detta bara einu sinni í það aftur og lofa svo að þeir verði
edrú eftir það.
Eins og staðan er í dag þá á að
fjármagna kosningaloforðin með enn einni gengisfellingunni, bara eitt
verðbólgubálið enn. Lækka á verðgildi launa og framkalla eignaupptöku hjá
launamönnum. Þessi aðferð hefur undanfarna áratugi jafngilt því að fjórðungur
launa hafi verið tekinn úr launaumslögunum áður en þau ná í vasa launamanna.
Afnám verðtryggingar leysir
engan vanda. Hækkun verðtryggðra lána er sakir þess að viðkomandi er ekki að
greiða nema hluta vaxtakostnaðar. Verðtrygging er í raun greiðsludreifingarkerfi
á ofurvöxtum, sem er afleiðing mikillar verðbólgu, sem er afleiðing óagaðrar
efnahagsstjórnunar. Ef greiðsludreifingin er afnuminn verður fólki einfaldlega
gert að greiða ofurvextina með öðrum hætti.
Ef við byggjum við stöðugleika ESB og hefðum samsvarandi verðbólgu
og er í nágrannalöndum okkar, þyrftum við ekki verðtryggingarkerfi, eða með öðrum orðum þó svo við hefðum það
áfram þá myndi verðtryggingarkerfið aldrei fara í gang.
Vextir mótast af verðbólgu auk
raunvaxtakröfu og áhættuálagi. Ef samið er um verðtryggingargreiðsluform þá er
áhætta mun minni og vaxtakrafa og áhættuálag lægra.
Í þessu sambandi má benda á
að vaxtakrafa verðtryggðra lána er ríflega helmingi lægri en á þeim óverðtryggðu
lánum sem er verið að bjóða í dag. Það þýðir að þegar verðbólga er lág, er lántaki
að greiða umtalsvert hærri vexti á óverðtryggðum lánum, en verðtryggðum. Þarna
er að finna ástæðu þess að verðtryggð lán hafa reynst mun hagstæðari sé til
langs tíma litið.
Umræða þeirra sem telja að
afnám verðtryggingar sé einhver lausn jafngildir því að reikna með því að
meinið hverfi við það plástur sé fjarlægður af sárinu.