föstudagur, 28. febrúar 2014

Ráðherrar komnir upp að vegg


Ákafi Framsóknarmanna við að leggja fram tillögu um slit á viðræðum hefur vakið marga til umhugsunar. Hvers vegna lá þeim svona á? Hvers vegna ákveða þeir að setja samfélagið á annan endann í miðjum kjaraviðræðum sem eru gríðarlega mikilvægar þar sem tekist er á um að koma böndum á efnahagsvandann.

Ræður hér för örvæntingarfull tilraun til þess að beina sjónum almennings og fjölmiðla frá skelfilegum uppákomum Sigmundar Davíðs? Fyrst hjá Gísla Martein og síðar ræðu hans á Viðskiptaþingi þar sem hann sendi atvinnulífinu „fokkjú“ merki og gaf í skyn að hann ætlaði að reka Seðlabankastjóra fyrir að hafa reiknað út hvaða afleiðingar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar myndu hafa.

Í skýrslu Seðlabanka kom fram að ríkisstjórnin mun irústa þeim árangri sem efnahagslega atvinnulífið er að ná með yfirstandandi kjaraviðræðum. Reyndar var ekki hægt að skilja yfirlýsingar Sigmundur Davíðs í áramótaræðunni öðru vísi en svo að hann gæfi ekki neitt fyrir þau markmið og nú er hann rukkaður um efndir á þeim orðum í viðræðum við opinbera starfsmenn þar sem allt virðist stefna í harkaleg verkföll.

Skýrsla Hagfræðistofnunar var ríkisstjórninni einnig óhagstæð og ráðherrar urðu að tefla fram helstu útúrsnúningamönnum sínum í fréttaþáttum til þess sýna fram á að skýrslan boðaði slit á samningaviðræðum eins og fyrirhugað var þegar skýrlsan var pöntuð.

Allt þetta hefur snúist í höndum ráðherranna og þeir eru daglega staðnir að því að sýna þjóðinni forherta forsjárhyggju. Það berast best í því hvernig ráðherrarnir hafa snúa lýðræðinu á hvolf.

Samkvæmt skoðanakönnunum liggur fyrir að 82% þjóðarinnar vill fá að sjá niðurstöðu samninga og taka þá afstöðu. Vitanlega er ætlast til að þingmenn og ekki síst ráðherrar verndi þjóðarhag og leiti eftir eins hagstæðum samningum og kostur er. En þessu vilja ráðherrarnir ekki una og segjast vera óhæfir til þessara viðræðna.

Ef svo er þá segir lýðræðið að þeir eigi einfaldlega að segja af sér og kjósendur finna síðan mannskap til þess að vinna að þeim niðurstöðum sem þjóðin vill, og síðan ákveða hvort hún samþykka eða hafni.

Athafnir ráðherranna  einkennast af því að hafa safnað í kringum sig hópi sem hafa sömu skoðanir og þeir, í þannig umhverfi verður allt svo einfalt og auðvelt. Á síðasta kjörtímabili kom nær daglega fram á Alþingi harla einkennileg sýn stjórnarandstöðuþingmanna, nú ráðherra, á íslenskt samfélag. Þar voru á lofti töfralausnir á öllum vandamálum og leiddir fram snillingar sem reyndar gátu aldrei skýrt nákvæmlega hvað þeir áttu við. 

Nú þegar þeir eru komnir í valdastólanna þá reka þeir sig á hvern veggin á fætur öðrum, eins og kemur m.a. fram í framangreindum ummælum ráðherra í spjallþáttum og ræðum á þingum og ráðstefnum.

Fullyrt er að ESB-aðild sé einhliða framsal sjálfstæðis, og það sé að öllu leyti eðlis-óskylt aðild að Norðurlandaráði, Evrópuráði, EFTA, EES eða Nato. Sagt er að allir aðildarsinnar telji aðild lífsnauðsyn fyrir Íslendinga, en alls ekki frjálst val sjálfstæðrar þjóðar um hentuga framtíðarkosti.

Þá er óhikað fullyrt að allir aðildarsinnar á Íslandi séu ákafir stuðningsmenn hugmynda um aukna sameiningu innan ESB. Þetta er allt langt frá raunveruleikanum en virðist skila árangri í áróðrinum.

Fullyrt er síðan að aðildarsinnar hafi snúist gegn íslensku fullveldi og íslensku sjálfstæði, enda sé hér ekki um frjálst fjölþjóðasamstarf fullvalda ríkja að ræða. Samkvæmt þessu er sagt að vilji til frjálsrar viðskiptasamvinnu með áherslu á opið samfélag og samkeppnishæfni jaðri við föðurlandssvik.

Í fjölmiðlum er sagt að í ESB sé ekki aðgreint ríkisvald aðildarlanda, heldur allt í einu sameinuðu bákni. Ekki er minnt á að Brüssel-báknið er u.þ.b. 2% af vlf. ESB í heild eða minna. Þvert á móti eru öll ríkisumsvif allra aðildarlanda tekin saman í eitt.

Hagsmunagæslu einstakra aðildarlanda er lýst einfaldlega sem fingri á sameiginlegum valdsarmi undir ráðstjórn ESB, jafnvel þótt þessi hagsmunagæsla sé stundum andstæð vilja stofnana ESB.

Forræði aðildarlanda í eigin málum og yfir stofnunum ESB er ekki lýst sem sterkri stöðu þjóðríkjanna, heldur heitir þetta ,,lýðræðisvandi ESB". Þar sem tryggt er að embættismenn ESB fá ekki völd ríkis, fá ekki óskorað ríkisumboð, þá er það kallað ,,lýðræðishalli".

Öll stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækin reka umsvifamikil viðskipti innan ESB svæðisins og eiga þar stór útgerðarfyrirtæki og þekkja því vel það umhverfi. Þau vilja hins vegar ekki missa valdið hér heima, þar sem þau geta náð fram hagstæðum geðþóttaákvörðunum og svo ekki sé talað um „hagstæðum“ gengisfellingum. Þeir geti rekið sýn fyrirtæki bæði íslenskt og "Evrópsk" í Evrum en greitt laun í krónum.

Nú er svo komið að ríkisstjórnin kemst ekki hjá því að horfast í augu við þá staðreynd að við búum í lýðræðisríki og hún verður að víkja til hliðar hagsmunum fárra. Ráðherrar eiga ekki að komast upp með að velja á milli hvenær þeir fara að vilja þjóðarinnar og hvenær ekki. 

fimmtudagur, 27. febrúar 2014

Málflutningur ráðherra


Í umtöluðu viðtali á RÚV fyrir skömmum kom Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra víða við. Eitt af því var áminning til RÚV um að skortur væri á fulltrúum dreifbýlis í spjallþáttum RÚV, þar setti hann fram klisju sem þingmenn nota gjarnan til þess drepa umræðunni á dreif.

Forsætisráðherra er reyndar þingmaður dreifbýlis, flutti sína búsetu norður í land og var kosinn þar á þing, en ráðherrann virðist afar illa upplýstur um efnahagslega stöðu og horfur, hvort sem horft er til allrar þjóðarinnar eða þess kjördæmis sem hann var kosinn fyrir.
 
Sama má segja um Gunnar Braga Sveinsson dreifbýlisþingmann og ráðherra: ,,ESB er í raun ekki í stakk búið til að taka á móti velmegandi ríki eins og Íslandi og eiga samninga um aðild á jafnræðisgrundvelli.” Þessar fullyrðing lýsir dæmafáu þekkingarleysi á stöðu efnahagsmála og stöðu atvinnulífsins hér á landi.

Kaupmáttur Íslendinga er sá langlakasti á Norðurlöndum og vel undir meðaltali Evrópu. Framleiðni er með því lægsta sem þekkist í Evrópu eða á svipuðu stigi og er í Grikklandi. Tekjur Íslendinga eru tæplega 20% lægri en meðaltekjur í Evrópu. Íslendingar skila lengri vinnuviku en aðrir Norðurlandabúar, en þrátt fyrir það kemur minni kaupmáttur upp úr þeirra launaumslagi.

Það er ekki síst vegna rangrar efnahags- og peningastefnu, sem valda reglulegum gengisfellingum og leiða til þess að vextir íbúðalána hér eru a.m.k. tvöfalt hærri en í Evrópu og á Norðurlöndunum. Verðbólga hér er að jafnaði allt að þrefalt hærri en í nágrannalöndum okkar.
 
Seðlabankinn og reyndar fleiri hafa bent á að þær aðgerðir í efnahagsmálum sem Framsóknarflokkurinn hefur skipulagt muni leiða til enn frekari hækkunar verðbólgu og vaxta. Allt að fjórðungur þess sem kemur upp úr launaumslaginu fer í þessa gjaldmiðilshít.

Ráðherrarnir forðast endurtekið að ræða hina raunverulega stöðu mála og draga umræðuna frekar ofan í skotgrafirnar með klisjum, eins og að dreifbýlið búi við einhverskonar samsæri af hálfu þéttbýlinga.
 
Því er stundum haldið fram að ef bæta eigi stöðu dreifbýlis gagnvart þéttbýlinu þurfi að viðhalda mismunandi vægi atkvæða, það muni stuðla að fjölgun atvinnutækifæra í dreifbýlinu og bættum launakjörum, þannig sé þéttbýlinu gert að taka þátt í að lagfæra hina slöku félagslega stöðu dreifbýlisins.

Þetta er þekkt aðferð ákveðinna tegundar stjórnmálamanna og valdhafa, það er að beina athyglinni frá getuleysi ráðamanna og skapa til einhvern óvin. Á Íslandi er og hefur ætíð verið mesta misvægi atkvæða sem þekkist á Norðurlöndunum og hafa verið gerðar aths. við þetta kerfi. Þrátt fyrir þessa stöðu blasir við að mesta atvinnuleysið og um leið lakasta félagsleg staða hérlendis er í úthverfum höfuðborgarsvæðisins, ekki í dreifbýlinu.

Dæmi frá alþingiskosningunum 2007 varpa ljósi á kosningakerfið íslenska. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 35,4% atkvæða í Reykjavíkurkjördæmi norður og fjóra þingmenn kjörna, en Samfylkingin 29,2 prósent og fimm þingmenn. Framsóknarflokkurinn fékk þrjá þingmenn í Norðausturkjördæmi með 5.726 atkvæðum en engan þingmann með 4.266 atkvæði í Reykjavík.
Samfylkingin fékk 26,8% atkvæða í Suðurkjördæmi og tvo þingmenn, sama þingmannafjölda og Framsókn bar úr býtum í sama kjördæmi með 18,7% atkvæða.
Í Suðvesturkjördæmi voru um 4.600 atkv. bak við hvern þingmann á meðan það voru liðlega 2.000 atkv. í Norðvesturkjördæmi.
(Ath, orðalag lagfært og gert skýrara í þessari málsgrein eftir ábendingu kl 14:10 gg)

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar að draga tilbaka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu er afdrifarík fyrir fyrirtæki og almenning í landinu, segja forsvarsmenn íslenskra tæknifyrirtækja, þau munu missa aðgang að innri markaði EES, þeim samning verði rift þegar viðræðum við ESB verður slitið. Þessi ákvörðun setur rekstrarskilyrði margra fyrirtækja í uppnám.

Í könnunum undanfarin misseri kemur fram að 85% ungs fólks sættir sig ekki við þau kjör sem í boði eru á Íslandi og lítið framboð á spennandi atvinnutækifærum. Tæknifyrirtækin eru að flytja vegna stjórnunar efnahagsmála hér á landi. Flestir þeirra sem eru að fara úr landi er vel menntað fólk í góðum störfum, við ákvörðun um brottflutning ráða allt önnur sjónarmið en dreifbýlingar halda fram og þingmenn nota til þess að koma sér undan því að ræða stöðu Íslands.
 
Vægi atkvæða hefur ekkert með atvinnu- eða kjaramál að gera. Í ummælum forsvarsmanna íslenskra tæknifyrirtækja staðfestist vanþekking núverandi ráðherra á efnahagslegri stöðu Íslands og þeir eru að leiða landið inn í enn lakari stöðu.

Það er nánast allt sem bendir til þess að ríkisstjórnin vilji komast hjá málefnalegri umræðu um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, þar er nefnilega margt sem mælir með því að Ísland ljúki samningaviðræðunum. Ráðherrarnir vilja gera allt sem hægt er til þess að komast hjá umræðu við atvinnulífið og væntanlega skýrslu Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands. Þá er gripið til framangreindra vopna, sprengja umræðuna í loft upp og koma af stað djöfulgang um slit viðræðna.

fimmtudagur, 20. febrúar 2014

Mogginn á morgunverðarborðinu


Árum saman las ég Morgunblaðið á hverjum morgni. Fann þar vel skrifaðar fréttir, áhugaverðar greinar og innlegg í umræðuna, sem opnuðu margskonar vinkla á þjóðmálunum.

Svo breyttist Mogginn allt í einu í ofstopa  og rætinn skæting og ég afþakkaði að fá blaðið sent heim ásamt fjölmörgum öðrum og mér skilst að sá flótti standi enn.

En nokkur fyrirtæki virðast ekki sætta sig að boðskapur Moggans nái ekki inn á morgunverðarborð landsmanna og leggja reglulega í þann kostnað að koma blaðinu þangað.

Í morgun lá blaðið undir póstlúgunni. Í boði eru á greinar umfram leiðara ritstjórans eftir Jón Bjarnason, Guðna Ágústsson, Sigríði Andersen, og skoðanabræður þeirra í Staksteinum, ásamt ítarlegri umfjöllun um hvernig maður eigi að skilja nýja skýrslu Framsóknarflokksins um váfuglinn ESB. Einnig eru viðtöl við Birgi Ármannsson og Óskar Bergsson.

Mikið rosalega er ég þakklátur Hamborgarafabrikkunni að koma þessu til mín. Eftir að hafa skoðað Moggann í dag í boði þessa fyrirtækis get ég nefnilega svo auðveldlega tekið upplýsta ákvörðun um að ég mun ekki gerast áskrifandi
 
Ásamt því að vera upplýstur um hvaða skoðanir Hamborgarafabrikkan vill að ég og fjölskylda mín hafi.

miðvikudagur, 19. febrúar 2014

Ísland er best í heimi


Utanríkisráðherra Íslands  á Alþingi í umræðu um samstarf Íslands við þau ríki þar sem 80% viðskipta Íslands eiga sér stað.

„Hvað þá ríki eins og Íslandi sem státar af mörgu af því besta sem fyrirfinnst í álfunni, hvort sem litið er til hagstærða, samfélagsgerðar eða stjórnkerfis.“

Og svo „ESB er í raun ekki í stakk búið til að taka á móti velmegandi ríki eins og Ísland og eiga samninga um aðild á jafnræðisgrundvelli.“

Smá spurning; "Af hverju telja íslenskir launmenn að þeir við um 30% lakara kaupmátt en launamenn í nágrannaríkjum okkar?"
 
Þessi fullvissa launamanna er samansett af þessum atriðum :
a) 25-30% hærra verð að dagvöru.
 
b) Þrefalt hærri vöxtum.
 
c) 20% lengri vinnutíma en samt 20% lægri laun.
 
Smáríkið Kaupfélag Skagfirðinga og útgerðarríkið LÍÚ í Vestmanaeyjum hafa reyndar mjög gott, enda greiddu þau tug milljóna í kosningasjóð utanríkisráðherra..

Ísland, afsakið Kaupfélag Skagfirðinga og LÍÚ, er bezt í heimi, amk í allri Evrópu.

mánudagur, 13. janúar 2014

Hamlet


Sá Hamlet í gærkvöldi, Ólafur Darri er fantagóður leikari og fer oftast á kostum í sýningunni, en útfærslur Jóns Páls Eyjólfssonar leikstjóra og Jóns Atla Jónassonar umsjónarmanns texta í nokkrum atriðum virka ákaflega illa, sérstaklega er þetta áberandi í seinni hluta sýningarinnar.

Það fer Ólafi Darra t.d. ákaflega illa að segja aulabrandara á unglingamáli inn í miðjum texta Shakespeares, þá fór maður að velta fyrir sér hvort það yrði jafnmikið rok úti þegar maður færi heim og það var þegar ekið var niður í leikhús.

Ólafur Darri og Jóhanna Vigdís standa upp úr. Stundum heyrðist ekki hvað Hilmar Jónsson sagði, sama átti við um Hildi Berglind.

Hljóð og tónlist voru virkilega vel útfærð, sama átti við um lýsingu, en leikmyndin studdi ekki við verkið.

þriðjudagur, 7. janúar 2014

Er forsætisráðherra kominn í sjálfheldu? Aftur!


Forsætisráðherra talaði í nýársræðu sinni á sömu nótum og hann gerði í kosningabaráttunni. Lofaði miklu án þess að skýra hvernig hann ætlaði að framkvæma það. Hann fékk mörg atkvæði út á kosningaloforðin, en vill í dag ekki kannast við þau. Talar um loftárásir og mistúlkanir.

Öll vitum að það standa yfir kjaraviðræður á öllum vinnumarkaðnum. Í miðjum viðræðum kemur hann fram að segir að það verði að hækka mikið lægstu laun ásamt launum millistéttarinnar.

Þetta er vitanlega það sem við launamenn viljum heyra og er einmitt það sem tækifærissinnaður stjórnmálamaður segir þegar hann slær um sig í kosningabaráttu

En getur forsætisráðherra talað svona?

Þetta er reyndar vel þekkt, lofa miklum launahækkunum án þess að skýra út hvernig eigi að fjármagna þær. Hvernig eigi að koma í veg fyrir ruðningsáhrif, hækkun verðlags og verðbólgu. Með gengisfellingum hækkunum á vöxtum og skuldum heimila og fyrirtækja.

Hvernig ætlar forsætisráðherra að hækka laun þannig að hækkunin skili sér til launamanna og stoppi þar? Renni ekki beint í gegnum heimilið út í hærra verðlag og hærri afborganir af lánum og launamaðurinn standi eftir í enn verri stöðu.

Þetta upplifðum við, sem erum kominn yfir miðjan aldur, reyndar endurtekið á hinum umtalaða "Framsóknaráratug" fyrir þjóðarsátt. Þá var samið reglulega um 30% launahækkanir og launamenn fengu síðan yfir sig gengisfellingar og 50% verðbólgu.
 
Þá voru sko við lýði alvöru verkalýðsleiðtogar, sem stóðu á bryggjuandanum á gúmmístígvélum og fóru í löng og góð verkföll og helltu niður mjólk. 

Það er hvergi auðveldara að yfirbjóða en í kjaraviðræðum, en bera síðan sakir á aðra. Afsaka sig með því að andstæðingar glæsilegra launahækkana hafi náð sínu fram, með því að afþakka tilboð um enn frekari launahækkanir.

Fréttamenn hafa síðan ætíð einungis tekið viðtöl við þá sem yfirbuðu, en aldrei spyrja þeir grundvallarspurningarinnar, „Hvernig átti að framkvæma þetta þannig að kaupmátturinn vaxi?“

Nú segir fréttastofa Eyjunnar að það stefni í vandræði með kjarasamninga við opinbera starfsmenn. Af hverju spyr fréttastofan ekki frekar forsætisráðherra um hvað hann átti við í orðum sínum á gamlárskvöld?
 
Af hverju hafnaði hann launamönnum á almennum launamarkaði sérstökum skattbreytingum?  Aðgerðum sem hefðu einmitt komið hinum lægst launuðu vel, líka opinberu starfsmönnunum. Aukið kaupmátt án þess að skila sér í gengisfellingu og lækkuðum kaupmætti.

Einnig hljótum við að ætlast til þess að fréttamenn biðji forsætisráðherra um að útskýra fyrir okkur hvernig hann ætli að fara að því að framkvæma nýársloforð sín.

Forsætisráðherra mátti nefnilega vita að hann yrði að svara þeirri spurningu 2. janúar. Allir kjarasamninga opinberra starfsmanna voru lausir þegar hann flutti ræðu sína og það er ekki búið að ganga endanlega frá kjarasamningum á almennum markaði.

þriðjudagur, 31. desember 2013

Áramótahugleiðing um áhrif spjallþáttastjórnenda


Gylfi Zoega fer yfir stöðuna í grein í síðustu Vísbendingu sem kom út nú fyrir jólin. Gylfi segir m.a. að góður árangur hafi náðst í hagstjórn hér á landi síðustu árin. Hallarekstur ríkissjóðs hafi minnkað, hagvöxtur hafi verið í nokkur ár, atvinna aukist, skuldir lækkað og svo frv. Viðskiptajöfnuður hefur verið jákvæður undanfarin ár, en hann var mjög neikvæður árin þar á undan. Raungengi hefur ekki verið jafnlágt síðustu þrjátíu ár sama hvort miðað er við laun eða neysluverð, það hefur stuðlað að jákvæðum viðskiptajöfnuði.

Þrátt fyrir þetta hefur lítið birt yfir þjóðarsálinni. Stjórnmálamenn og álitsgjafar með spjallþáttakonungana í broddi fylkingar halda flestir áfram að mála skrattann á vegginn þó að hagtölur segi að kreppan sé búin.

Spjallþáttastjórnendur náðu flugi í Hruninu með yfirlýsingum á borð við“ Lífeyrissjóðirnir rannsökuðu sig sjálfir og eru mjög ánægðir með rannsóknina.“ Það hefur legið fyrir um langt skeið að tjón íslensku lífeyrisjóðanna í heild nam um 21,5%, en til samanburðar má nefna að Calpers sjóðurinn í Bandaríkjunum, sem er sá stærsti í heimi, tapaði 27,1%, Norski olíusjóðurinn tapaði 23,3% og meðaltal bandarískara verðbréfasafna fór niður um 22,5%. Aðrar íslenskar fjármálastofnanir en lífeyrissjóðirnir fóru meir og minna allar lóðbeint á hausinn.

Hvað er það sem skýrir þessa mismunandi upplifum? Menn á borð við Egil Helgason hafa endurtekið gert málflutning lýðskrumara sem náðu miklu flugi í þáttum hans í kjölfar hrunsins í spjallþáttunum að sínum og þeir viðhalda kreppu hugarfarsins.

Innlendur sparnaður er nauðsynlegur til þess að standa straum af innlendri fjárfestingu og afborgunum af erlendum lánum. Því ættu stjórn að leggja áherslu á innlendan sparnað og hann er mestur innan lífeyriskerfisins.

Sparnaður er nauðsynlegur fyrir hagvöxt, án hans getur fjárfesting ekki vaxið. Þeir sem leggja áherslu á aukna einkaneyslu við núverandi aðstæður lifa í hugarheimi lokaðs hagkerfis, en ekki í opnu litlu hagkerfi þar sem stór hluti aukinnar einkaneyslu fer í innflutning og eykur þjóðarútgjöld.

Það gengur ekki upp án þess að verðmætasköpun og þjóðarframleiðsla verði aukinn. Á þetta var bent í Stöðugleikasáttmálanum og hefur verið ítrekað af hálfu aðila vinnumarkaðs undanfarið.

Áratuginn fyrir gerð Þjóðarsáttar í febrúar 1990, var verðbólgan yfirleitt á milli 25-50% og fór jafnvel töluvert hærra, gengið var reglulega fellt og til þess að vinna upp glataðan kaupmátt samið reglulega um launahækkanir sem oftast námu tugum prósenta. var fellt, enda náðu þær vel þennan áratug vel þriðja þúsund prósenta. Vextir fóru með himinskautum.

Í Þjóðarsátt var samið um 1% kaupmáttarlækkun fyrsta árið, en á þeim forsendum að launamenn myndu fá það tilbaka í vaxandi kaupmætti, lægra verðlagi og vöxtum. Áratuginn eftir Þjóðarsátt fór verðbólgan niður í 1 – 3%, kaupmáttur óx sem aldrei fyrr og áratuginn eftir Þjóðarsátt námu launahækkanir að meðaltali á annan tug prósenta.

Þetta kallar spjallþáttakonungar og lýðskrumarar þeirra helför og afþakka blómakransa.

fimmtudagur, 26. desember 2013

Nytsamir sakleysingjar á Akranesi


Hún er einkennileg ritstjórn Eyjunnar, alla jóladagana er á forsíðu unnið að því að kynda undir deilum innan verkalýðshreyfingarinnar. Tilgangurinn blasir við, það hefur allt frá stofnun stéttarfélaganna í byrjun síðustu aldar verið markmið valdhafanna að ala á sundurlyndi meðal launamanna.

Formaður og stjórn Verkalýðsfélagsins á Akranesi er þar óspart nýttur og honum hampað.

Allar athafnir VLFA endurspeglast afskaplega vel í því í því félagið dró ekki tilbaka það samningsumboð sem félagið framseldi í upphafi viðræðna til Starfsgreinasambandsins. Fulltrúar VFLA hlupu hins vegar enn einu sinni á dyr þegar komið er að úrslitastundu, og sýna sig í því að hafa ekki dug og getu til þess að takast á við vandann.

Formaður og stjórn VFLA krefst þess að venju að allir fari að hans vilja, en svo vill til að 95% Alþýðusambandsins er ekki á sömu skoðun, en það virðist ekki skipta fjölmiðlamenn.

Ef litið er til ummæla stjórnar VFLA, sem fjölmiðlamenn og spjallþáttakonungar spila ítrekað, þá er ekki hægt að skilja þau á annan hátt en svo að það hafi verið forseti ASÍ og samningamenn allra annarra stéttarfélaga innan ASÍ, stéttarfélaga sem eru með yfir 95% félagsmanna aðildarfélaga ASÍ, sem hafi sagt í Karphúsinu, „Nú er nóg komið af þessum launahækkunartilboðum, alls ekki meira. Takk fyrir og réttið okkur pennana til þess að undirrita.“

Það liggur fyrir að samningamenn allra aðildarfélaga ASÍ hafa allt frá því í september haldið fjölmarga félagsfundi, auk þess að standa fyrir skoðanakönnunum meðal sinna félagsmanna, þannig að samningamenn þessara stéttarfélaga hafa haft fullt umboð til þess að ganga þá leið sem farinn var, og það er síðan félagsmannanna að taka afstöðu til niðurstöðunnar.

En svo kemur stjórn VFLA enn eina ferðina og segist vita betur hvað félagsmenn allra hinna stéttarfélaganna í landinu vilji og krefst þess að samningamenn viðkomandi stéttarfélaga gangi gegn samþykktri eigin stefnu!!

Hvernig stendur á því að stjórn VFLA dró ekki samningsumboð sitt til baka og snéri síðan spjótum sínum að Samtökum atvinnurekenda og krafðist þeirra launahækkana sem það telur sig hafa í hendi?

Ítrekað reyna formaður og stjórn VFLA enn eina ferðina að koma ábyrgð á eigin afglöpum yfir á önnur stéttarfélög. En við öllum blasir sú staðreynd að VFLA treystir sér ekki sjálft til þess, ef svo væri hefðu þeir dregið samningsumboðið tilbaka.

Í félagslegu samstarfi er það meirihlutinn sem ákveður og maður verður einfaldlega að lúta þeirri niðurstöðu, það er að segja ef maður ætlar sér að vera áfram í félagslegu samstarfi.

Fjölmiðlar í eigu tiltekins hóps hagsmunaðila í samfélaginu og meðal atvinnurekenda, berjast af öllum krafti gegn því að tekið verði í alvöru á vandanum og vilja viðhalda möguleikanum til reglulegra gengisfellinga þegar vandanum er "blóðsúthellingalaust velt yfir á launamenn“ svo vitnað sé til helsta hugmyndasmiðs þessarar stefnu. Hégómagirnd nytsamra sakleysingja er nýtt til fullnustu.

Samtök atvinnurekenda verða því alltaf stikkfrí í þessari umræðu, í boði hinar VFLA, sem líklega er harðasti andstæðingur launamanna á Íslandi þessa dagana. Spjallþáttakonungar reyna hins vegar að telja okkur í trú um að þar fari baráttumenn.

Staðan í dag er nákvæmlega sú sama og hún var í nóvember og desember 1989, sem gat af sér Þjóðarsáttarsamningana, sem leiddi til mesta kaupmáttarauka sem dunið hefur á launamönnum hér á landi. Áratuginn eftir það var hins vega samið um 12% launahækkanir, en áratuginn á undan hafði verið samið um 2.700% launahækkanir með heimsmetum í verkföllum og flest fyrirtæki landinu voru kominn að fótum fram ásamt flestum heimilum þessa lands.

Það hefur komið fram að tiltekin fyrirtæki hafa enn einu sinni hafnað þeirri stefnu sem meirihluti stéttarfélaga ASÍ og ráðandi hóps innan SA ætla að fara og er að vinna sér svigrúm til þess að ná þangað. Gegn því er barist og fjölmiðlamönnum og spjallþáttakonungum beitt af öllu afli og þeir spila á hégómagirnd hinna nytsömu sakleysingja.

 

sunnudagur, 22. desember 2013

Lýðskrumarinn og fjölmiðlarnir


Ég hef komið að gerð kjarasamninga með einum eða öðrum hætti nánast allan minn starfsaldur. Fyrst sem áhugamaður á félagsfundum, síðan sem trúnaðarmaður og komst þá  í samninganefnd og svo sem forsvarsmaður landssambands frá 1993 - 2011.

Í hverjum einustu kjarasamningum upplifir maður upprisu einstaklinga sem lofa miklum launahækkunum og yfirbjóða óspart. Ekkert er auðveldara en að yfirbjóða í kjarasamningum, nema það væri kannski að deila út kosningaloforðum. Yfirboðsmenn ná oftast athygli fjölmiðla og á því þrífast þessir einstaklingar.

Ég er ekki gagnrýna þá sem hafa mismundandi skoðanir á hver áherslan eigi að vera. Éf er að gagnrýna þá sem eru við samningaborðið eins og aðrir, en þeir fara síðan alltaf í fjölmiðla og koma í bakið á félögum sínum. Ég þekki engan sem stendur sáttur upp frá samningaborði, en þegar meirihluti samninganefndar metur það svo ekki sé hægt að ná lengra þá verður maður að una því.   

Lýðskrumarinn veit að hann mun ekki geta staðið við innistæðulaus loforð sín og alltaf er fyrirséð hvernig hann muni bregðast við.

Lýðskrumarinn endar alltaf sína velþekktu vegferð með því að bera sakir á aðra félaga sína í verkalýðshreyfingunni, oftast blandað andstyggilegu persónulegi níði, þó svo hann viti, og fjölmiðlamenn ættu einnig að vita, við erum ekki að semja við önnur stéttarfélög um kaup og kjör. Kjarasamningar eru gerðir milli stéttarfélaga við samtök fyrirtækja og/eða sveitarfélaga. Stéttarfélög semja ekki hvert við annað, eins og skilja má í spjallþáttum og fréttum.

Hér spilar fjölmiðlamaðurinn stórt hlutverk undir stjórn lýðskrumarans og við líðum fyrir það hversu slök íslensk fjölmiðlun er í sumum tilfellum, vegna þekkingarleysis fjölmiðlamanna og þess sjónarmiðs sem ræður : Það á að vera fjör í fréttunum og í spjallþáttunum. Lýðskrumaranum er hampað í viðtölum og spjallþáttum og gjarnan er hann nefndur "baráttumaður!!".

Það liggja fyrir samþykktir í öllum stéttarfélögum hvaða stefnu þau vilja fylgja. En lýðskrumarinn og fjölmiðlamenn virða þá stöðu vettugi og virðast oft ætlast til þess að forsvarsmenn stéttarfélaga gangi gegn samþykktum félagsmanna sinna.

Þó svo tillögur lýðskrumarans séu felldar með yfirgnæfandi fjölda atkvæða, heldur hann áfram og virðir vilja meirihlutans að vettugi og fær til þess góða aðstoð fjölmiðlanna. Það er sama hvað kemur upp ætíð ber hann sakir að félaga sína - ekki viðsemjendur stéttarfélaganna.

Í fjölmiðla og spjallþáttameðferð er ætíð gengið út frá því það sé lýðskrumarinn hafi rétt fyrir sér, en samþykktir allra annarra stéttarfélaga virtar vettugi.

Ætíð er það svo að það liggur fyrir að þeir aðilar sem lýðskrumarinn þarf að ná samningum við munu aldrei fallast á kröfur hans. Vitanlega er það lýðskrumarinn sem er að tapa ekki aðrir, en hann hefur ekki burði til þess að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna og þau vonbrigði sem felast í þeim væntingum sem hann er búinn að vekja hjá því fólki sem minnst má sín. Þar liggur er mesti fantaskapurinn sem er afleiðing gjörða lýðskrumarans. Meiri maður er hann nú ekki.

En vitanlega er það félagsmaðurinn sem hefur síðasta orðið, og þá ræður einfaldur meirihluti. Menn verða að hafa það í huga að ef félagsmenn samþykkja samninginn þá eru þeir búnir að losa samninganefndina undan ábyrgð.

mánudagur, 16. desember 2013

Verðtryggingin


Eitt af kosningaloforðum Framsóknar var afnám verðtryggingar. Einblínt á verðtrygginguna sem einhvern vanda og verði hún afnuminn sé búið að leysa þann vanda sem fólk lenti í þegar það fjárfesti í íbúðarhúsnæði.

Verðtryggingin er ekki vandinn, ef verðtrygging er felld niður koma einfaldlega breytilegir vextir í staðinn og fólk situr í enn verri stöðu, eða mjög háir meðalvextir.

Fólki hefur alltaf staðið til boða að velja óverðtryggð lán en hefur hafnað því og valið frekar verðtryggð. Hvers vegna? Vegna þess að fólki er þá gert greiða umtalsvert meira en það þarf þegar verðbólgan er í eðlilegum stærðum. Um þetta hafa verið skrifaðar margar góðar greinar, en skrumararnir hafa alltaf skautað hjá þeim.

Þetta sést t.d. mjög vel m.a. á myndinni hér að neðan. Það er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að bæta verðtryggingarkerfið eitthvað eða breyta útfærslum á því, en það leysir ekki þann vanda sem fólk lenti í.

Nokkrar staðreyndir :

• Verðtrygging er óvirk ef ekki eru verðlagsbreytingar. Ef við búum við stöðugleika þá er hún meinlaus.

• Ef verðgildi krónunnar breytist lagar verðtrygging fjárskuldbindingar að því ástandi, hvort sem um er að ræða rýrnun hans í verðbólgu eða hinu gagnstæða í verðhjöðnun, góður eiginleiki.

• Verðtrygging er ekki einungis til hér á landi hún er víða til, jafnvel í löndum sem búa við stöðugleika. þjóðverjar, Bretar, Svíar og mörg önnur ríki gefa út verðtryggð skuldabréf. Hollenskir lífeyrissjóðir veita verðtryggð lán.

Í dag er rætt er um þak á hækkun verðtryggingar umfram 4%. Ef lántakandi fengi lán á 4,35% vöxtum með 4% þaki ætti hann rétt á endurgreiðslu á þeirri upphæð sem færi upp fyrir þakið.


Hér er mynd af 12 mánaða verðbólgu og svo meðaltalsverðbólgu. Byggt á upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

 
 
Það er eitt að tala um verðbólguálag en ekki er komist hjá því að bæta við verðbólguáhættu sem felst í áhættu á tímabundnum toppum eins og m.f. mynd sýnir.


Áhættulausir 20 ára verðtryggðir jafngreiðsluvextir eru í dag um 2,8%. Sjóðsfélagalán lífeyrissjóða bera í dag um 0,5 – 1,5% álag á áhættulausa vexti og boðið er upp á um 4% vexti ásamt verðtryggingu svipuð kjör og Íbúðalánasjóður býður.


Verði þakinu komið á þýðir það aukið álag á grunnvexti og húsnæðislán í dag yrðu þá um 6,4 - 7%. Líttu á myndina aftur og sjáðu lesandi góður hvernig þetta hefði verið ef meðaltalslínan lægi við 7% í töflunni hér ofar. Er það það sem verið er að biðja um, það er að segja að sætta sig við að greiða okurvexti, í stað þess að tekið verði á vandanum og komið á stöðugleika til framtíðar.

Með því kerfi sem verið hefur þá færist vaxtatalan niður þegar verðbólgan fer niður.