fimmtudagur, 22. nóvember 2007
Lista yfir 100 fátækustu íslendingana
Bláfátækir erlendir fjölskyldufeður við uppbyggingu á velferðarríkinu Ísland
Í blöðunum sem flæða inn um póstlúguna eru áberandi upplýsingar um hvernig ríka fólkinu líður og myndir af því sem sína hversu flott sundföt það á og hvernig það situr upp á húddinu á Ferrarinum. Textinn með myndunum fjallar um samanburð á því hvort viðkomandi hafi færst upp eða niður í röðinni.
Ég verð að segja eins og er mér finnst einhvern veginn engin ástæða til þess að segja okkur þessar fréttir og mér er slétt sama hvernig bíl þetta fólk á og hvernig baðfötum það klæðist. Ég meina það, eins og unglingarnir segja, við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu liði, það hefur það bara aldeilis ágætt og vill örugglega fá að vera í friði.
Það væri mikið meira fréttaefni að fá að sjá hvernig listinn yfir hina 100 fátækustu liti út. Það væri mikill fróðleikur fólgin í því að fá sundurgreiningu á því af hverju lenti viðkomandi á þessum lista. Hvernig gengur honum að vinna sig út af listanum, er hann að hækka eða lækka frá síðasta lista? Á hann Lada sport eða kannski bara strætókort, eða bara gamalt Möve hjól. Skyldi hann fara á kaffihús og svo í sund á eftir?
Er þetta ung fjölskylda með börn, sem keypti íbúð og reiknaði með að barnabætur og vaxtabætur myndu ekki lækka eða jafnvel hverfa? Er þetta einstaklingur sem lenti í því að verða fyrir vinnuslysi og lenti í fátækragildrunni sem stjórnvöld hafa búið til. Er þetta einstaklingur sem lenti í því óláni að verða aldraður? Hvernig hefur bæjarfélagið tekið á vandamálum hans? Er Baldur í fjármálaráðuneytinu að skoða ástæður þess að viðkomandi lenti á þessum lista, er ríkisstjórnin með áætlun um hvað hún ætli að gera í málinu?
Einnig má spyrja hvort ríkistjórnin og Samtök atvinnulífsins ætli að beita sér í því að koma til móts við verkalýðshreyfinguna og samþykkja kröfur um sérstaka hækkun lægstu launa og afnema skerðingarnar í bótakerfinu. Eða byggja 1.000 íbúðir fyrir öryrkja og aldrað fólk. Þetta væri verðugt verkefni fyrir blaðamennina og þá væri ég tilbúinn að lesa blöðin spjaldanna á milli, núna fletti ég þeim bara á 5 mínútum og set þau svo í ruslagáminn og kveiki á tölvunni og skoða netheimana.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Áhugavert. Þeir sömu og eru alltaf að gagnrýna(öfunda) þá sem eiga mikla peninga yrðu alveg dýrvitlausir ef það yrði birtur svona botn100 listi en sannleikurinn er einfaldlega sá að það er hægt að búa til svona lista einu sinni á ári ef viljinn er fyrir hendi.
Skrifa ummæli