föstudagur, 24. apríl 2009

Efnahagslegar þrælabúðir á Íslandi - smá viðbót

Algengt viðkvæði stjórnmálamanna sem verja krónuna er að benda á lönd innan ESB og segja að þar séu mikil vandamál. Þau eiga við efnahagsvandamál að etja, okkar stærstu vandamál eru vegna gjaldmiðilsins.

Ég hef áður bent á að það sé einkennilegt og óábyrgt hjá stjórnmálamönnum að bera okkur saman við lönd án þess að taka tillit til þess að þau eru með verðbólgu sem er innan við 4 - 5% og vexti á svipuðu stigi.

Það eru lönd þar sem fólk er ekki að tapa eignum sínum vegna ónýts gjaldmiðils, ofurvaxta og verðtryggingar. Þar getur fólk selt eignir sínar og flutt þær, t.d. til annarra landa. Hér í krónuumhverfinu er hvorugt hægt.

Ekkert land í Evrópu hefur orðið fyrir jafnmiklu kerfistjóni og Ísland, það er vegna hruns krónunnar.

Ekkert Evruríki hefur orðið fyrir jafnmiklu tekjutapi og hér, það er vegna hruns krónunnar. Tekjustofnar ríkissjóðs hafi hrunið um tugi prósenta og er í raun stærsta vandamálið sem komandi ríkisstjórn þarf að glíma við.

Ísland er fullkomlega rúið efnahagslegu trausti, það er vegna krónunnar.
Hér má vísa til ummæla forsvarsmanna atvinnulífsins undanfarna daga.

Rekstur reistur á traustum grunngildum í stöðugu umhverfi verður stöðugur og leiðir jafns vaxtar og skapar störf. Það rekur engin fyrirtæki til langfram með bókhaldsblekkingum – Ebita blekkingum.

Íslenskt atvinnulíf getur ekki endurfjármagnað sig, það er vegna krónunnar Lönd sem eru með Evru eru ekki í sömu vandræðum. Hér vísa ég einnig til ummæla forvarsmanna atvinnulífsins og hagdeilda aðila vinnumarkaðs.

Hvergi á norðurlöndunum eða í vestan-verðri Evrópu hefur kaupmáttur fallið eins mikið og hér, það er vegna hruns krónunnar. Kaupmáttur hefur fallið um á annan tug prósenta síðustu 10 mán.

Vextir hér eru hærri vegna krónunnar. Vextir leiða til hærra verðlags. Óstöðugur gjaldmiðill gefur af sér enn hærra verðlag. Það eru aðstæður og skilyrði sem ákvarða hvort fyrirtæki vaxa og dafna

25% af launum íslendinga fara í aukakostnað vegna krónunnar. Til þess að hafa svipuð laun og annarsstaðar á norðurlöndunum þurfum við að skila 25% lengri vinnuviku.

Hvergi hefur eignatap einstaklinga orðið eins mikið og hér, það er vegna hruns krónunnar

Stór hluti af verðfalli eigna lífeyrissjóða og sjóða þar sem fólk geymir sparifé sitt er vegna þessa kerfisfalls krónunnar og þessi hluti stefnir í að verða langstærsti þátturinn í verðfallinu.

Vextir hér á landi eru töluvert hærri en annarsstaðar og vaxtamunur verður alltaf a.m.k. 5% hærri á Íslandi en innan Evrusvæðisins, þða er vegna krónunnar.

Ef fjölskylda sem kaupir sér eitt hús á Íslandi og önnur kaupir sér hús t.d. í Danmörku. Þá er staðan sú eftir 20 ár að þá hefur íslenska fjölskyldan greitt sem svarar andvirðis tveggja húsa, séu greiðslur bornar saman við endurgjald dönsku fjölskyldunnar.

Krónan heldur íslendingum í efnahagslegum þrælabúðum. Við viljum efnahagslegt frelsi takk fyrir.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Auðvitað Guðmundur!!! Allt krónunni að kenna. Þar með ertu búinn að sýkna alla fjármálaóreiðumennina, útrásarvíkingana, spillt íslensk stjórnvöld osfrv.
Hér hefur engin spilling ríkt, ekkert misjafn gerst, enginn þjófnaður framinn, enginn aur í skattaskjólum erlendis!!
Er þetta nú ekki að ganga of langt í trú á evruna og Evrópusambandið? Eða kannski er Samfylkingin þar með saklaus af þátttöku sinni í sjálftökustjórn hennar og Sjálfstæðisflokksins?
Er það í raun og veru ekki tilgangurinn með þessu bulli í þér?

Guðmundur sagði...

Í aths. hér fyrir ofan sjáum við dæmigerða útúrsnúninga sem valda því að menn (sem nær alltaf hafa ekki getu til þess að koma öðruvísi en nafnlausir) komast ekkert áfram í umræðunni.

Ef fyrri pistlar mínir eru lesnir þá kemur fram greinargóð skýring á afstöðu minni til útrásarvíkinga og fleiri.

En það breytir engu hvað varðar því ástandi sem krónan veldur

Nafnlaus sagði...

Jóhannes:

Góð samantekt. Ég er 100% sammála öllum punktunum hjá þér.

Það vill svo til að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og, eftir því sem ég kemst næst, Borgaraflokkurinn, eru algerlega sammála um að krónan sé ónýt og nauðsynlegt sé að taka upp aðra mynt. VG vill krónu áfram án þess að koma með neina stefnu í gjaldmiðils- og peningamálum. En það er skýr meirihluti væntanlegs þingstyrks sem er sammála um að skipta um mynt.

Samfylkingin virðist einn flokka hafa einu raunhæfu stefnuna, þ.e. lausn sem er fyrirsjáanlega fær, þ.e. inngöngu í ESB og upptöku Evru.

Það yrðu því snautleg örlög VG gæti komið í veg fyrir upptöku Evru, eins og margt bendir til.

PS. Ég þarf, stöðu minnar vegna, að velja milli þess að skrifa undir hálfu nafni eða tjá mig ekki neitt. Ég hef valið fyrri kostinn.